Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results 1 to 20 of 251 for “"Skyldur"”
-
Réttindi og skyldur fasteignasala
Ritgerðin fjallar um réttindi og skyldur fasteignasala eins og þau koma fyrir í lögum um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu nr. 99/2004. Leitast er við að svara þeirri spurningu hvort viðeigandi ákvæði laganna séu þannig úr garði gerð að þau séu til þess fallin að ná þeim markmiðum sem stefnt er …
-
Skyldur stjórnenda í fjármálafyrirtækjum
… Höfundi þótti því ástæða til að skoða hverjar skyldur stjórnenda eru í fjármálafyrirtækjum. Að ýmsu þarf að huga þegar skyldur stjórnenda eru skoðaðar. Fjármálafyrirtæki eru rekin sem hlutafélög. Regluverk í kringum fjármálafyrirtæki er þó mun víðtækara en í kringum venjuleg hlutafélög. Því …
-
Réttindi og skyldur forsjárlausra foreldra
… forsjárlausu foreldrana, réttindi þeirra og skyldur. Mikil áhersla er í dag lögð á að forsjárlausir foreldrar fái að taka þátt í lífi barns, meðal annars með umgengnisréttinum og skyldunni til umgengni. Í íslenskum lögum er samspil á milli réttinda barna og foreldris þess og verður í upphafi …
-
Helstu skyldur fasteignasala á Íslandi
… hafa milligöngu um sölu á fasteignum og skipum. Skyldur fasteignasala eru tíundaðar í sömu lögum. Þá ber fasteignasölum einnig að fylgja siðareglum Félags fasteignasala. Meginmarkmið með þessari ritgerð er að varpa ljósi á helstu skyldur fasteignasala með því að rýna í lagaumhverfi, dóma sem …
-
Skyldur og refsiábyrð stjórnarmanna í hlutafélögum
Hlutafélagalög nr. 2/1995 kveða á um margvíslegar skyldur stjórnarmanna varðandi setu þeirra í stjórn félaga. Meginmarkmið þessarar ritgerðar var að fjalla um þessar lagaskyldur stjórnarmanna með sérstaka áherslu á þá refsiábyrgð sem stjórnarmenn þurfa að axla séu þær lagaskyldur ekki uppfylltar. …
-
Stéttarfélög og skyldur þeirra gagnvart félagsmönnum
Viðfangsefni ritgerðarinnar er stéttarfélög og skyldur þeirra gagnvart félagsmönnum. Fyrst verður farið yfir helstu skilgreiningar og atriði sem nauðsynlegt þykir að skýra áður en komið verður að meginefninu. Meðal annars verður skoðað hvað stéttarfélög eru, vernd þeirra og aðild að þeim. Þá verður …
-
Byggingarstjórar : ábyrgð og skyldur við mannvirkjagerð
Í þessari ritgerð er fjallað um ábyrgð og skyldur við mannvirkjagerð með sérstakri áherslu á byggingarstjóra. Markmið ritgerðarinnar er að greina hvenær byggingarstjóri getur þurft að sæta skaðabótaábyrgð vegna starfa sinna. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er lagaþróun síðustu ára gerð skil og …
-
Réttindi og skyldur greiðsluvirkjenda og reikningsupplýsingaþjónustuveitanda
Ritgerð þessi ber heitið „Réttindi og skyldur greiðsluvirkjanda og reikningsupplýsinga-þjónustuveitanda“ og er skrifuð á sviði innlends greiðsluþjónusturéttar. Henni er ætlað að svara því hvaða réttindi og skyldur verða lögð á greiðsluvirkjendur og reikningsupplýsingaþjónustuveitendur á grundvelli …
-
Réttindi og skyldur foreldra gagnvart barni
… svara grundvallarspurningum er varða réttindi og skyldur foreldra samkvæmt ákvæðum barnalaga nr. 76/2003, með síðari breytingum. Bæði verður farið í réttindi og skyldur þeirra foreldra sem fara með forsjá og þeirra foreldra sem eru forsjárlaus og gerður greinarmunur á stöðu foreldra eftir því. Þá …
-
Afplánunarúrræði sakhæfra barna : skyldur Íslands að þjóðarétti
Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og fleiri alþjóðasamningum hefur Ísland skuldbundið sig að þjóðarétti til þess að gæta réttinda barna í hvívetna. Í þessu riti verður fjallað um sérstök réttindi barna sem getið er í mörgum samningum og reglum Sameinuðu þjóðanna, en það eru réttindi barna …
-
Réttindi og skyldur aðila og vitna í einkamáli
… að fara yfir og varpa ljósi á helstu réttindi og skyldur sem aðilar og vitni hafa með aðkomu sinni að almennu einkamáli. Lítillega verður fjallað um mun á íslensku sakamálaréttarfari og íslensku einkamálaréttarfari. Fjallað verður um meginreglur einkamálaréttarfars. Þá munu mismundandi flokkar …
-
Vernd barna gegn ofbeldi : þjóðréttarlegar skyldur íslenska ríkisins
… ofbeldi sem tilgreint er í sáttmálunum og þær skyldur sem þeir leggja á ríkið á þessu sviði. Næst er litið til ákvæða íslensku stjórnarskrárinnar og almennra laga er varða vernd barna gegn ofbeldi, með hliðsjón af þjóðréttarlegum skuldbindingum. Að lokum er fjallað um það hvernig ríkið …
-
Ábyrgð og skyldur stjórna íslenskra fjármálafyrirtækja og fjölbreytileiki þeirra
… . Skoðað er hverjar eru ábyrgðir og skyldur stjórna og þær kenningar sem settar hafa verið fram af fræðimönnum um hlutverk þeirra. Þá er fjallað um hvaða þátt stjórnir fjármálafyrirtækja áttu í hruni fjárm álakerfisins á haustdögum 2008 og byggir á rannsókn OECD þar um, því þær …
-
Skyldur bílaumboða samkvæmt lögum nr. 140/2018 - Skyldur bílaumboða til framkvæmdar áreiðanleikakannana sbr. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Ritgerð þessi fjallar um skyldur bílaumboða og bílasala samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, með sérstakri áherslu á framkvæmd áreiðanleikakannana og samræmi þeirra við meginreglur stjórnsýsluréttar. Markmið ritgerðarinnar er að svara þeirri …
-
Launþega- eða verktakasamband íþróttamanna : ábyrgð og skyldur íþróttafélags sem launagreiðanda
… Þá verður fjallað um þær skatt- og staðgreiðsluskyldur sem falla á íþróttafélag sem launagreiðanda þegar greiðslur leikmanns eru virtar sem launatekjur í skilningi 1. mgr. 1. tl. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003. Tilefni rannsóknarinnar eru sú umræða sem skapaðist í kjölfar …
-
Viðhorf unglinga á Akureyri til frétta : réttur barna, skyldur uppeldisaðila
… snerta ábyrgð uppeldisaðila gagnvart unglingum, skyldur uppeldisaðila og réttindi unglinga. Fjallað er um þau áhrif sem aukið magn og form frétta geta haft á unglinga og hvort, hverjir og hvernig hægt sé að bregðast við þeim breytingum. Gerð var könnun meðal nemenda í 8. 9. og 10. bekk í …
-
Réttindi og skyldur seljanda í fasteignaviðskiptum þegar upp koma mygluskemmdir
Ritgerð þessi fjallar um réttindi og skyldur seljanda í fasteignaviðskiptum þegar um er að ræða mygluskemmdir. Markmið hennar er að greina hvernig ábyrgð seljanda er afmörkuð samkvæmt lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup, með sérstakri áherslu á samspil gallahugtaksins, upplýsingaskyldu seljanda, …
-
Íslensk sveitarfélög hlutverk og skyldur : er nauðsynlegt að fækka þeim?
… og endurdreifa auð í gegnum félagslega þjónustu. Skyldur þeirra hafa farið vaxandi síðustu áratugi og var hlutur sveitarfélaga í vergri landsframleiðslu tvöfalt meiri árið 2020 en hann hafði verið 40 árum áður. Á þessu sama tímabili hefur orðin mikil samþjöppun á sveitarfélögum og hefur þeim …
-
Skyldur stjórnarmanna í tengslum við fjárhagserfiðleika og/eða ógjaldfærni hlutafélaga
Skyldur stjórnarmanna í tengslum við fjárhagserfiðleika og/eða ógjaldfærni hlutafélaga. Líkt og nafnið gefur til kynna fjallar ritgerðin um þær skyldur sem hvíla á herðum stjórnarmanna, þegar hlutafélag glímir við fjárhagserfiðleika og eftir atvikum ógjaldfærni. Þegar um slíkar áskoranir er að …
-
Stöðugt eigið eftirlit : skyldur atvinnurekenda gagnvart öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks
Atvinnurekendur hafa það hlutverk að fylgjast stöðugt með vinnuumhverfi vinnustaðar síns og bera kennsl á hættur sem kunna að felast þar, ýmist í umhverfinu sjálfu og þeim sem felast í framkvæmd vinnunnar. Í því felst að tryggja góðan aðbúnað á vinnustað sínum til að stuðla að líkamlegu öryggi og …
Page 1 of 13