Abstract
dc:description.abstractÍ lok ársins 2002 voru 7.603 einstaklingar, sjötíu ára og eldri, í hjónabandi eða sambúð á Íslandi. Af þeim bjuggu 7.082 í eigin íbúðarhúsnæði eða um 93,15% þeirra. Á sama tíma voru einhleypir og einstæðir foreldrar sjötíu ára og eldri 11.693. Af þeim áttu 8.249 eigin íbúðarhúsnæði en 3.444 voru án eigin fasteignar. Hlutfall einhleypra og einstæðra foreldra sem eiga fasteign er 70,55%. Lög og reglugerðir hafa mikil áhrif á ráðstöfunartekjur ellilífeyrisþega. Þar koma helst til sjónarmið um tekjujöfnun en mikil áhersla hefur verið lögð á tekjujöfnun í uppbyggingu íslensks samfélags. Markmiðum um tekjujöfnun hefur að miklu leyti verið náð og leiðir það til þess að áunnin lífeyrisréttindi þeirra einstaklinga sem greitt hafa í lífeyrissjóð er skert að stórum hluta. Mál þróuðust þannig á Íslandi eftir seinni heimstyrjöldina að ríkisvaldið hafði lítil afskipti af uppbyggingu íbúðarhúsnæðis ólíkt því er gerðist á meginlandi Evrópu en þar stóðu mörg ríki fyrir mikilli uppbyggingu félagslegra leiguíbúða. Einkaframtakið var það sem dreif uppbygginguna áfram og þá ekki síst vinnuframlag eigendanna sjálfra. Þessi þróun leiddi það af sér að lítið framboð varð á leiguhúsnæði þar sem flestir Íslendingar komu sér upp eigin húsnæði. Nú hefur orðið breyting á og ríkisstjórn Íslands hefur lagt til fjármagn í gegnum íbúðalánasjóð á sérkjörum til uppbyggingar leiguíbúða og uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga. Þá eru viðskiptabankarnir farnir að átta sig á tækifærum í lánveitingum til skuldlítilla ellilífeyrisþega sem eiga fasteignir. Niðurstöður greiningar leiða í ljós að hægt er að hafa veruleg áhrif á ráðstöfunartekjur sínar með vali á íbúðarformi. Kaup á búseturétti í húsnæðissamvinnufélagi eins og Búmönnum með 30% eignarhlutdeild og búseturétti með 100% eignarhlutdeild eins og býðst hjá Sunnuhlíðarsamtökunum í Kópavogi leiðir til mestrar aukningar ráðstöfunartekna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hörður Hilmarsson
- Advisor dc:description.advisor
-
- Stefán B. Gunnlaugsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Akureyri
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/1007