Back to search

University of Akureyri

Áhrif Bowen tækni á börn með ofvirkni og/eða athyglisbrest

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Tilgangur rannsóknarinnar var að gera frumkönnun á áhrifum einnar óhefðbundinnar meðferðar, Bowen tækni, á börn með ofvirkni og/eða athyglisbrest (ADHD). ADHD er krónísk og almenn taugageðfræðileg röskun sem venjulega kemur fram snemma á barnsaldri. Megineinkennin eru meðal annars áberandi eftirtektarleysi, áhugaleysi og einbeitingarskortur, að barnið á erfitt með að sitja lengi kyrrt og er oft á iði. Helstu meðferðarúrræði við ADHD eru lyfjameðferðir og atferlismótandi meðferðir. Lítið er vitað um áhrifa annarra meðferða en lyfjameðferða. Rannsóknir hafa þó sýnt að foreldrar nota í auknum mæli óhefðbundnar meðferðir fyrir börn sín. Rannsóknaraðferðin var megindleg og lýsandi. Þýði rannsóknarinnar voru þau börn sem komu til fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar frá því í byrjun febrúar fram í byrjun maí 2007. Úrtakið innihélt sex börn á aldrinum fjögurra til ellefu ára sem uppfylltu greiningarskilyrði fyrir ofvirkni og/eða athyglisbrest. Gögnin voru fengin úr tveimur spurningalistum, annars vegar margprófuðum matslista fjölskyldudeildar og hins vegar spurningalista rannsakanda sem verið var að forprófa og úr sjúkraskrám þátttakenda. Þrír voru fyrir meðferð greindir ofvirkir en fimm með athyglisbrest. Eftir meðferðina var aðeins einn sem enn uppfyllti greiningarskilyrði fyrir ofvirkni og fjórir sem uppfylltu greiningarskilyrði fyrir athyglisbrest. Við meðferðina batnaði svefn og hvíld þátttakenda verulega og leiddi það til betri hegðunar þeirra og einbeitingar. Hjúkrunarfræðingar þurfa að vera opnir fyrir og hafa góða þekkingu á óhefðbundnum aðferðum og geta komið til móts við þarfir skjólstæðinga sinna og sýnt skilning á þeim hugmyndum sem þeir hafa til að bæta líðan sína. Lykilorð: ofvirkni, athyglisbrestur, Bowen tækni, svefnvandamál, óhefðbundnar meðferðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Harðardóttir
Advisor dc:description.advisor
  • Hafdís Skúladóttir 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/1069

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Harðardóttir. Áhrif Bowen tækni á börn með ofvirkni og/eða athyglisbrest. 2007. https://hdl.handle.net/1946/1069