Back to search

University of Akureyri

Almenn menntun til alhliða þroska

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um almenna menntun og mikilvægi hennar til alhliða þroska grunnskólabarna. Alla tíð hefur mannskepnan mótað hugmyndir um menntun, hvað hún er og hvaða leiðir við getum farið til þess að öðlast hana. Almenn menntun er meginstoð lýðræðis, menningar og velferðar fyrir einstaklinga og þar með samfélagið. Það er mikilvægt að hverju sinni ríki sátt um hvað menntun er því grunnskólinn er skyldunám sem er ætlað að undirbúa ungar manneskjur til þess að takast á við lífið í dag og eftir að skólaskyldu lýkur. Það er hverju samfélagi nauðsynlegt að sem flestir öðlist grunnmenntun til þess að skilja sem flesta þræði samfélagsins. Skólinn þarf fagmenn sem vinna samkvæmt aðalnámskrá með sveigjanleika í kennsluaðferðum og námsmati sem hentar fyrir námsgrunn og áhugasvið ólíkra nemenda. Til þess að verða að manni þurfa margir þættir að liggja saman í námi nemenda. Skólinn og kennarar þurfa að vinna eftir markmiðum sem sett eru af stjórnvöldum sem hafa þróast frá örófi alda. Heimilin geta styrkt börnin með því að taka þátt í heimanámi þeirra og vera þannig órjúfanlegur þáttur í uppeldi og menntun barns. Samvinna allra sem koma að mótun og menntun barns í grunnskóla er mikilvæg svo stefnan sé á hreinu og barnið viti um tilgang verkefna sinna og hvernig það getur nýtt þá þekkingu sem skólinn og heimilin miðla til þess gegnum nám. Samfélagið þarfnast almennrar menntunar einstaklinga og að þeir séu vel upplýstir um sjálfa sig og sína menningu. Ekki síður er mikilvægt að hin almenna menntun veiti börnum þekkingu á ólíkum siðum og gildum manna til þess að öðlast umburðarlyndi og víðsýni. Alhliða þroski er grunnur til að byggja ofaná, hver og einn ætti að hafa möguleika til þess að halda áfram að þroska kosti sína og velja sér leið til þess að vera virkur samfélagsþegn eftir að grunnskóla lýkur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson 1975-
Advisor dc:description.advisor
  • Finnur Friðriksson 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 4

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/1663

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson 1975-. Almenn menntun til alhliða þroska. 2008. https://hdl.handle.net/1946/1663