Back to search

University of Akureyri

Notkun matstækjanna AMPS og MBI við færnimat aldraðra

Abstract

dc:description.abstract

Iðjuþjálfar vinna með skjólstæðingum sínum við að efla færni þeirra með það að markmiði að skjólstæðingarnir öðlist meira sjálfstæði og lífsfyllingu. Í upphafi íhlutunarferlisins metur iðjuþjálfi færni skjólstæðinga sinna með tilliti til endurhæfingar og annara úrræða. Samfélagið gerir sífellt meiri kröfur um gæði, hraða, hagkvæmni og sparnað í heilbrigðiskerfinu. Þar eru störf iðjuþjálfa ekki undanskilin og er því mikilvægt að iðjuþjálfar noti matstæki sem eru fljótleg og gefa áreiðanlegar niðurstöður. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá úr því skorið hvort matsniðurstöður Assessment of Motor and Process Skills (AMPS) og Modified Barthel Index (MBI) væru samhljóma. AMPS er iðjumiðað og ítarlegt matstæki, en er tímafrekt í framkvæmd og krefst þess að iðjuþjálfinn hafi farið á námskeið. MBI er þverfaglegt matstæki sem er einfalt og fljótlegt í framkvæmd og krefst ekki námskeiðs. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notuð megindleg rannsóknaraðferð og niðurstöður settar fram með lýsandi tölfræði. Úrtakið í rannsókninni voru 30 einstaklingar, 67 ára og eldri sem ekki höfðu verið greindir með elliglöp, 20 inniliggjandi á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og 10 íbúar á Droplaugarstöðum hjúkrunarheimili. Við samanburð á niðurstöðum matstækjanna kom fram marktæk fylgni milli þess kvarða AMPS sem fjallar um framkvæmdaþætti er varða hreyfingu og MBI en ekki milli MBI og þess hluta AMPS sem fjallar um framkvæmdaþætti er varða verkferli. Þetta gefur vísbendingu um að niðurstöður matstækjanna séu samhljóma hvað líkamlega færni snertir. Mikill munur var á þeim tíma er matsferli matstækjanna tveggja tók. Matsferli AMPS tók í öllum tilfellum mun lengri tíma í heildina en matsferli MBI. Lykilhugtök: Assessment of Motor and Process Skills (AMPS), Modified Barthel Index (MBI), færnimat, athafnir daglegs lífs (ADL) og aldraðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Anna Ingileif Erlendsdóttir
  • Auður Hafsteinsdóttir
  • Jóhanna Rósa Kolbeins
Advisor dc:description.advisor
  • Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir 1949-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/175

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Ingileif Erlendsdóttir; Auður Hafsteinsdóttir; Jóhanna Rósa Kolbeins. Notkun matstækjanna AMPS og MBI við færnimat aldraðra. 2005. https://hdl.handle.net/1946/175