Back to search

University of Akureyri

Ræktun á rauða kóngakrabba

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta er unnið með fyrirtækinu Eldisrannsóknir ehf. og fjallar um ræktun á rauða kóngakrabba frá klaki og upp í markaðsstærð en það hefur ekki verið reynt áður í heiminum. Rauði kóngakrabbi hefur aðeins verið ræktaður að ungviðastigi og sleppt svo útí náttúruna í von um að styrkja stofna villta krabbans. Helstu erfiðleikar við ræktun á kóngakrabba eru flókinn lífsferill, hægur vöxtur og sjálfrán. Í þessu verkefni er farið yfir þá þætti sem skipta mestu máli þegar kemur að lifun og vexti rauða kóngakrabba í ræktun. Helstu niðurstöðurnar eru þær að mögulegt er að rækta rauða kóngakrabba upp í markaðsstærð (2kg +) frá klaki með réttu hitastigi og fóðrun en það gæti tekið allt að fimm ár. Hægt er að minnka sjálfrán bæði hjá lirfum og ungviðiskrabba með því að hafa lítinn þéttleika og fjölbreytt undirlag sem veitir krabbanum vernd og svæði til að vaxa og þroskast. Til að hámarka vöxt og lifun rauða kóngakrabba þarf hitastig í ræktuninni að vera 7-12°C. Vel hefur reynst að fóðra lirfurnar með lifandi artemíu sem búið er að auðga með fitusýrum eða lýsi. Fóður ungviðis og fullvaxta kóngakrabba getur verið mjög fjölbreytt en æskilegt er að blanda astaxanthin við fóðrið svo að skel krabbans verði rauð. Rauði kóngakrabbi er verðmæt tegund og áætla Eldisrannsóknir ehf. að selja krabbann lifandi á markaði í Asíu og Norður Ameríku.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Blöndal Gunnarsson 1989-
Advisors dc:description.advisor
  • Hreiðar Þór Valtýsson 1967-
  • Rannveig Björnsdóttir 1959-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/22011

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Blöndal Gunnarsson 1989-. Ræktun á rauða kóngakrabba. 2015. https://hdl.handle.net/1946/22011