Back to search

University of Akureyri

Screening for viral hemorrhagic septicemia virus in lumpfish (Cyclopterus lumpus) from Eyjafjörður, Iceland with real-time RT-qPCR

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2015 greindist viral hemorrhagic septicemia veiran (VHSV) í fyrsta skipti á Íslandi. Veiran var greind í hrognkelsum (Cyclopterus lumpus) úr Breiðafirði, með aðferðum þar sem frumulínur voru notaðar. Tilgangurinn með þessu verkefni var að kanna hvort veiruna væri að finna í hrognkelsum úr Eyjafirði. Til þess var notuð sameindaerfðafræðileg RT-qPCR aðferð sem hefur ekki verið notuð hér á landi í þeim mæli, er æskilegt gæti talist, til slíkrar skimunar. Tuttugu og þrír fiskar voru veiddir, krufðir og ástandsgreindir. Við krufningu sýndu þrír fiskar svipuð einkenni og VHS veirusýktir fiskar. Eftir skimun með RT-qPCR aðferðinni á RNA úr fiskunum, reyndust allir fiskarnir vera neikvæðir fyrir VHSV. Í ritgerðinni er rætt mikilvægi þess að skima eftir veirunni í hrognkelsum og öðrum fisktegundum við Ísland í ljósi þess að veiran hefur greinst í nágrannalöndum þar sem hún hefur breiðst hratt út síðustu ár, sér í lagi í fiskeldum þar sem hún hefur valdið miklu tjóni. Í dag eru gerðar tilraunir með að nota hrognkelsi við að hreinsa lýs af eldisfiski og þykir sú aðferð umhverfisvæn og árangursrík. Hins vegar gæti stafað ógn af þeirri aðferð þar sem að VHSV gæti mögulega borist inn í fiskeldin þegar notaðar eru aðrar fisktegundir til hreinsunar á þennan máta. Real-time RT-qPCR aðferðin er því kjörin aðferð til þess að skima eftir veirunni hér á landi sem og annars staðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birta Líf Fjölnisdóttir 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Kristinn P. Magnússon 1957-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/24924

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Líf Fjölnisdóttir 1990-. Screening for viral hemorrhagic septicemia virus in lumpfish (Cyclopterus lumpus) from Eyjafjörður, Iceland with real-time RT-qPCR. 2016. https://hdl.handle.net/1946/24924