Back to search

University of Akureyri

Lífsleikni : þróun og gildi lífsleikni í íslensku skólakerfi

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Ritgerðin fjallar um námsgreinina lífsleikni, birtingarmynd hennar og þróun í íslensku skólakerfi. Áhersla er lögð á að skoða og fjalla um hvernig lífsleikni birtist í Aðalnámskrá grunnskóla og bera núgildandi og eldri námskrár saman. Ritgerðin hefst á fræðilegu yfirliti um þróun íslenska skólakerfisins, grunnskólalaga og Aðalnámskrár grunnskóla. Síðan er námsgreinin lífsleikni skilgreind. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna hvert gildi lífsleikni er í grunnskólalögum og Aðalnámskrá grunnskóla. Miklar og hraðar breytingar hafa átt sér stað í samfélaginu og á skólakerfinu á undanförnum áratugum og skólarnir hafa fengið aukið uppeldisfræðilegt hlutverk. Lífsleiknin var sett fram sem ný námsgrein árið 1999 til þess meðal annars að svara þessari kröfu um uppeldishlutverk skólanna. Lífsleikni er í grunninn siðfræði og hlutverk hennar er að efla alhliða þroska nemenda. Litlar breytingar hafa orðið á megin viðfangsefnum lífsleikni frá því að námsgreinin kom fyrst fram en hver aðalnámskrá fyrir sig hefur komið með sínar áherslur. Gildi námsgreinarinnar lífsleikni í grunnskólalögum og Aðalnámskrá grunnskóla hefur aukist með hverri lagasetningu og námskrá fyrir sig. Í núgildandi Aðalnámskrá grunnskóla er lífsleiknin eða viðfangsefni hennar áberandi og tekur á öllum helstu þáttum sem eiga að vera grunnurinn í íslenskri menntastefnu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Matthildur Ósk Óskarsdóttir 1995-
Advisor dc:description.advisor
  • Sigríður Ingadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/33859

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Matthildur Ósk Óskarsdóttir 1995-. Lífsleikni : þróun og gildi lífsleikni í íslensku skólakerfi. 2019. https://hdl.handle.net/1946/33859