Back to search

University of Akureyri

Fjölskylda samtímans : fjölskylduhagir 10. bekkinga á Íslandi árið 2006 og tengsl þeirra við nánustu aðstandendur

Abstract

dc:description.abstract

Geðtengsl barna og foreldra hafa verið sögð skipta höfuðmáli þegar skoðaðir eru þeir þættir sem hafa áhrif á hvernig ungu fólki farnist í lífinu. Rannsóknir sýna að þeir sem eiga í góðum tilfinningalegum tengslum við foreldra sína eigi síður við sálræn eða félagsleg vandamál að stríða. Hin íslenska fjölskylda hefur breyst mikið á síðustu öld og mörg fjölskylduform hafa sprottið fram í samtímanum. Því eru tengsl fjölskylduforms og geðtengsla umfjöllunarefni þessarar rannsóknar. Unnið var úr gögnum úr rannsókninni Heilsa og lífskjör skólanema sem lögð var fyrir snemma á þessu ári. Þar voru skoðaðir fjölskylduhagir 10. bekkinga. Einnig voru skoðuð viðhorf þeirra til ýmissa tengsla milli sín og ólíkra fjölskyldumeðlima. Þátttakendur voru 1913 talsins eða um 40% af heildarþýðinu. Mælitækið sem notast var við í rannsókninni var spurningalisti sem nemendur fylltu sjálfir út. Helstu niðurstöður eru þær að 25% nemenda eiga sér annað heimili en aðeins 31,6% þeirra dvelja þar að einhverju ráði. Tilfinningatengsl móður mældust lág og mun lægri en tilfinningatengsl við föður. Foreldrar sem búa saman vita mest um það hvar unglingurinn er og hverjir vinir hans eru miðað við önnur fjölskylduform. Unglingar eiga almennt erfitt með að tala við stjúpforeldra eða í um 60% tilfella. Niðurstöður benda til þess að fjölskylduform hafi áhrif á tilfinningatengsl að einhverju leiti en þó ekki öllu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Árný Þóra Ármannsdóttir
  • Gréta Kristjánsdóttir
Advisor dc:description.advisor
  • Kjartan Ólafsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/369

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árný Þóra Ármannsdóttir; Gréta Kristjánsdóttir. Fjölskylda samtímans : fjölskylduhagir 10. bekkinga á Íslandi árið 2006 og tengsl þeirra við nánustu aðstandendur. 2006. https://hdl.handle.net/1946/369