University of Akureyri
Breyting til batnaðar eða víti til varnaðar : viðhorf ólíkra kynslóða til lögleiðingar kannabis
Abstract
dc:description.abstractÍ áranna rás hefur verið deilt um lögleiðingu kannabis víða um heim og skoðanir verið mjög skiptar varðandi kosti og galla þess að lögleiða efnið. Umræðan hefur verið áberandi á undanförnum árum þar sem nokkur lönd hafa lögleitt efnið ásamt nokkrum ríkjum Bandaríkjanna. Hér á Íslandi má bæði heyra raddir þeirra sem telja að lögleiðing kannabis yrði breyting til batnaðar sem og raddir þeirra sem telja að lögleiðingin myndi verða víti til varnaðar síðar. Áhugavert er að skoða hverju þessar ólíku skoðanir tengjast, hefur aldur áhrif og má þá sjá kynslóðamun í viðhorfum til kannabis? Þessi rannsókn byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð og tilgangur hennar er að kanna hvort munur sé á milli kynslóða þegar kemur að afstöðu til lögleiðingar kannabis. Til að skoða þetta voru tekin eigindleg viðtöl við sex einstaklinga sem tilheyra þremur kynslóðum, tvo viðmælendur frá hverri kynslóð. Kynslóðirnar sem teknar voru fyrir voru: Kynslóð Z, Kynslóð X og Þögla kynslóðin. Rannsakandi ályktaði fyrir rannsóknina að einstaklingar sem tilheyrðu yngri kynslóðum væru opnari fyrir hugmyndum um að lögleiða kannabis en fólk sem tilheyrði eldri kynslóðum. Í ljós kom að viðmælendur höfðu mjög ólíkar og skiptar skoðanir á viðfangsefninu þar sem sumir höfðu sterkar skoðanir og gáfu mjög ítarleg svör en aðrir höfðu ekki velt umræðuefninu mikið fyrir sér. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til að það sé ekki skýr kynslóðamunur á viðhorfum til lögleiðingar kannabis heldur sé það frekar reynsla einstaklinga sem hafði áhrif á viðhorf til lögleiðingar kannabis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva Ómarsdóttir 2000-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Jón Haukur Ingimundarson 1957-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Akureyri
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/44934