Back to search

University of Akureyri

Símenntun í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi

Abstract

dc:description.abstract

Íslenskt þjóðfélag hefur á tiltölulega stuttum tíma tekið miklum breytingum vegna utanankomandi áhrifa, eins og framfara á sviði vísinda og tækni, sem leitt hafa af sér örari samskiptahætti og upplýsingdreifingu. Sveitarfélög á Íslandi eru óhjákvæmilega þátttakendur í því breytilega umhverfi. Þjónustuhlutverk þeirra hefur breyst í takt við félagslegar breytingar í umhverfinu og á vinnumarkaðinum, m.a. með tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Þar af leiðandi verða starfsmenn sveitarfélaganna að vera í stakk búnir til að takast á við stöðugar breytingar og ný verkefni. Sveitarfélögin sem atvinnurekendur skulu mæta þessum kröfum með innleiðingu sí- eða endurmenntunaráætlana með það að markmiði að skipuleggja námskeið og þjálfun til þess að efla þann mannauð sem starfsmenn þeirra eru. Sum sveitarfélög hafa nú þegar hafist handa við innleiðingu símenntunaráætlana og önnur ekki. Verkefni þetta sem unnið er í samvinnu við Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp miðar að því að undirbúa innleiðingu símenntunaráætlunar fyrir sveitarfélögin. Stuðla þannig að framþróun í starfsmannamálum, gefa starfsmönnum kost á að auka þekkingu sína og starfshæfni og leiða þar með til aukinnar starfsánægju. Ýmsir þættir mannauðsstjórnunar hafa sýnt fram á að hvatning ýti undir ánægju í starfi og þörf starfsmanna til að ná árangri og þroska í starfi. Sveitarfélögin geta nýtt sér þessar kenningar og haft hvetjandi áhrif á starfsmenn til eflingar og þroska með innleiðingu símenntunaráætlunar. Lykilorð: Sveitarfélög - símenntun – mannauðsstjórnun – mannauður -starfsánægja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Jónasdóttir
Advisor dc:description.advisor
  • Sigríður Ólafsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Akureyri

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/511

Chain of custody

source
Harvested from
University of Akureyri
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Jónasdóttir. Símenntun í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. 2005. https://hdl.handle.net/1946/511