Bifröst University
Neytendakaup : galli og tilkynningarfrestur neytenda : hvaða sjónarmið ráða við mat á því hvort söluhlutur falli undir tveggja eða fimm ára hámarks tilkynningarfrest neytenda
Abstract
dc:description.abstractNeytendaréttur er sú undirgrein lögfræðinnar sem fjallar um réttarstöðu neytenda og er það viðfangsefni þessarar ritgerðar. Fjallað er í stuttu máli um réttarsviðið og sögu kaupalaga. Kynnt verður til sögunnar stjórnsýsla neytendamála. Þar á eftir er fjallað um gallareglur laga um neytendakaup með hliðsjón af lögum um lausafjárkaup og tilskipunar ESB um tiltekna þætti í sölu neysluvara og ábyrgð þar að lútandi. Umfjöllunin tekur til hvers konar eiginleika söluhlutir þurfa að hafa og hvenær galli telst vera til staðar. Tilkynningarfrestur neytenda er skoðaður og fjallað er um hvenær neytandi þarf að tilkynna seljanda um galla og þann hámarks tilkynningarfrest sem neytandi hefur þegar um galla er að ræða. Meginreglan um hámarkstilkynningarfrest eru tvö ár en undantekningu er að finna um söluhluti sem er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti, en þá gildir fimm ára tilkynningarfrestur. Höfundur reynir að skýra hvers konar söluhlutum er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti og hvaða sjónarmið ráða við mat á því hvort hlutur falli undir tveggja eða fimm ára hámarkstilkynningarfrest. Til þess var bæði íslensk og norsk réttarframkvæmd skoðuð. Matið felst í hversu lengi neytandi mátti vænta hver ending söluhlutar væri en horft er t.d. til kaupverðs, meðferðar og framleiðslufyrirtækis söluhlutar. Í ritgerðinni er tekinn saman tæmandi listi yfir þá hluti sem kærunefnd lausafjárog þjónustukaupa hefur fellt undir fimm ára tilkynningarfrest og eru einnig tekin dæmi úr norskri framkvæmd
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Egill Daði Ólafsson 1984-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigurður R. Arnalds 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/10016