Back to search

Bifröst University

Dómaframkvæmd Evrópudómstólsins vegna tilfærslu félaga á milli aðildarríkja : er þörf á heildstæðri félagaréttarlöggjöf innan Evrópusambandsins?

Abstract

dc:description.abstract

Eitt af stofnmarkmiðum Evrópusambandsins var að koma á fót sameiginlegu markaðssvæði aðildarríkja þess. Mikilvægur þáttur í virkni hins sameiginlega markaðssvæðis byggist á því að einstaklingar og fyrirtæki geti flutt auðveldlega á milli aðildarríkja sambandsins og stundað atvinnustarfsemi undir sameiginlegu regluverki. Sáttmálinn um starfshætti Evrópusambandsins veitir einstaklingum og fyrirtækjum rétt til að stofna til og starfrækja atvinnustarfsemi innan aðildarríkja sambandsins og er stofnsetningarréttur talinn vera eitt af grundvallarréttindum á innri markaði Evrópusambandsins. Á sviði evrópsks félagaréttar er heildstæðri löggjöf ekki til að dreifa og hefur það í för með sér að vandasamt er að flytja fyrirtæki á milli aðildarríkja, líkt og einstaklingar geta gert. Birtast vandkvæðin í framkvæmd flutninganna því í mörgum tilvikum er gerð sú krafa að fyrirtæki skuli slitið og stofnað á ný í því aðildarríki sem það kýs að flytja til. Slík framkvæmd getur verið bæði kostnaðarsöm, tímafrek og lagalega flókin. Þess utan er augljóst að þetta ástand brýtur í bága við markmið ESB um einsleitt markaðssvæði sem og stofnsetningarrétt fyrirtækja. Þessi ritgerð skýrir núverandi stöðu fyrirtækja innan aðildarríkja ESB með tilliti til möguleika þeirra á tilfærslu á milli aðildarríkja. Höfundi fannst áhugavert að reyna að varpa ljósi á þróun réttarsvið stofnsetningarréttar og leggja mat á það hvort þörf sé á heildstæðri félagaréttarlöggjöf innan Evrópusambandsins. Þá markast umfjöllun ritgerðarinnar af dómaframkvæmd Evrópudómstólsins á þessu sviði fram að nýjasta úrskurði hans, Cartesio dómnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór Þ. Þorsteinsson 1985-
Advisor dc:description.advisor
  • Helga Kristín Auðunsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10018

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Þ. Þorsteinsson 1985-. Dómaframkvæmd Evrópudómstólsins vegna tilfærslu félaga á milli aðildarríkja : er þörf á heildstæðri félagaréttarlöggjöf innan Evrópusambandsins?. 2011. https://hdl.handle.net/1946/10018