Bifröst University
Metan sem orkugjafi fyrir íslenskar bifreiðar : staða og framtíðarhorfur
Abstract
dc:description.abstractMarkmið skýrslunnar var að kanna hvort að metan væri valkostur fyrir íslenskar bifreiðar, hver staðan væri í dag og framtíðarhorfur. Metan(CH4) er gastegund sem myndast við niðurbrot á öllu lífrænu efni. Í dag er metan unnið á urðunarstöð Sorpu bs. að Álfsnesi. Í dag getur stöðin framleitt metan eldsneyti fyrir 3.500 til 4.500 smábíla en það eru einungis 233 metanbifreiðar skráðar hjá Umferðarstofu í dag. Staða metans í dag er jákvæð þar sem samkeppni er komin í dreifingu metans með stofnun Metanorku ehf í eigu íslenska gámafélagsins en áður var það einunings Metan hf í eigu Sorpu bs, N1, REI og Orkuveita Reykjavíkur sem dreifði metani. Gerð var símakönnun þar sem 155 eigendur metanbifreiða á Íslandi voru spurðir um notkun sína á metanbifreiðum. Þar kom fram að notendur eru yfirleit mjög ánægðir með metanbifreiðina sína en finnst ekki nægjanlegt að hafa einuningis tvær afgreiðslustöðvar með metan og það einungis á Reykjavíkursvæðinu. Reiknað voru út gjöld og álögur á metanbifreiðum í samanburði við bensínbifreiðar og kom þar fram að álögur eru mun minni en á bensínbifreiðum. Alþingi hefur sett lög um niðurfellingu gjalda á umhverfisvænum bifreiðum og frítt er í bílastæði í allt að 90 mínútur. Metan er valkostur fyrir íslenskar bifreiðar og framtíðarhorfur eru góðar, en það þarf samvinnu ríkis og sveitafélaga til að ná því markmiði að metan verði valkostur númer eitt þegar kemur að vali á orkugjafa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valgerður Ögmundsdóttir 1970-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Svansson 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/10177