Back to search

Bifröst University

Hver er eignarréttarleg staða aflaheimilda og hvaða heimildir hefur löggjafinn til breytinga á löggjöf um stjórn fiskveiða

Abstract

dc:description.abstract

Sjávarútvegur er ein af grunnstoðum íslensks þjóðfélags og skapar umtalsverðar tekjur fyrir þjóðarbúið. En löngum hafa verið uppi deilur um kvótakerfið svokallaða. Ekki síst það hvernig stjórna skyldi veiðum, hverjir ættu að fá úthlutað aflaheimildum og hver sé eigandi auðlindarinnar. Með setningu laga nr. 38/1990 nú 116/2006 var í fyrsta skipti komið á lögum um fiskveiðistjórnun sem voru ótímabundin. Fyrri lög um stjórn fiskveiða voru ýmist tímabundin til eins eða tveggja ára. Tilgangurinn með lagasetningunni var að koma á fiskveiðistjórnunarkerfi sem ætlað væri að vara um lengri tíma til að m.a. auðvelda útgerðaraðilum að gera áætlanir og skipuleggja rekstur sinn til lengri tíma. Frá því að lögin voru sett hefur verið uppi ágreiningur um eignarréttarlega stöðu aflaheimildanna og það hvort um sé að ræða varanlega eignarheimild eða ekki. Frá upphafi kvótakerfisins hefur jafnframt verið um það deilt hvort og þá hvaða heimildir löggjafinn hafi til að gera breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í ritgerðinni verður fjallað um þetta álitaefni og gerð grein fyrir eignarréttarlegri stöðu aflaheimilda og jafnframt, í ljósi eignarréttarlegrar stöðu aflaheimildanna, gerð grein fyrir heimildum löggjafans til breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu m.a. með tilliti til eignarréttarverndar stjórnarskrár. Í því ljósi er eignaréttur samkvæmt íslenskum rétti skoðaður, hvernig stofnað var til réttindanna, hvernig eignarrétti á hafsvæðum og fiskistofnum er háttað svo og heimildir löggjafans til breytinga og setningar á reglum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Björg Ragnarsdóttir 1968-
Advisor dc:description.advisor
  • Einar Karl Hallvarðsson 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10294

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Björg Ragnarsdóttir 1968-. Hver er eignarréttarleg staða aflaheimilda og hvaða heimildir hefur löggjafinn til breytinga á löggjöf um stjórn fiskveiða. 2011. https://hdl.handle.net/1946/10294