Abstract
dc:description.abstractTöluverðar deilur hafa verið um verðmæti vatnsréttinda sem yfirtekin hafa verið vegna vatnsaflsvirkjana á Íslandi. Óeining hefur ríkt milli þeirra sem áður fóru með umráða- og nýtingarrétt vatnsréttindanna og þeirra sem hafa yfirtekið réttindin, annað hvort á grundvelli samninga eða eignarnáms, um með hvaða hætti skuli meta réttindin til fjár. Í ritgerðinni verður leitast við að greina frá gildandi rétti um skilyrði eignarnáms, fjárhæð eignarnámsbóta á sviði vatnamála og með hvaða hætti reglum á því sviði hefur verið beitt í framkvæmd. Umfjöllun um framkvæmd mats á eignarnámsbótum vegna vatnsréttinda var afmörkuð við vatnsréttindi sem nýtt hafa verið vegna stórvirkjana á Íslandi þar sem Blönduvirkjun og Kárahnjúkavirkjun hafa töluverða sérstöðu. Rannsókn viðfangsefnisins leiddi í ljós að ekki er að finna heildstæða löggjöf um fjárhæð eignarnámsbóta á Íslandi þó ýmis ákvæði, sem ætlað er að veita leiðbeiningar við slíkt mat, megi finna í settum lögum. Niðurstaðan er því að ef vatnsréttindi eru tekin eignarnámi eða samið er um að fjárhæð bóta vegna yfirtöku slíkra réttinda skuli vera í samræmi við reglur eignarnámsréttar hefur ekki verið talið tækt að styðjast við aðrar aðferðir en beitingu mælikvarða söluverðs eða notagildis. Hafi vatnsréttindin ekki þekkt markaðsverð skal miða við mælikvarða notagildis. Aðrar aðferðir eins og að meta verðmæti vatnsréttinda sem hlutfall af brúttósölutekjum virkjunar af rafmagni hafa ekki verið taldar samrýmanlegar gildandi reglum eignarnámsréttarins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingvar Christiansen 1981-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/10297