Bifröst University
Tilurð leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts í frjálsri og sérstakri skráningu og meðferð við gjaldþrot
Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð fjallar á heildstæðan hátt um tilurð og meðferð leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts í frjálsri og sérstakri skráningu. Í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er að finna ákvæði sem heimilar svokallaðar frjálsar og sérstakar skráningar á virðisaukaskattskrá. Orðalag ákvæðisins er fremur fátæklegt, en gerir þó ráð fyrir heimild fjármálaráðherra til að setja nánari reglur um þessar skráningarleiðir. Sú heimild hefur verið nýtt með setingu reglugerða nr. 576/1989, um virðisaukaskatt af byggingarstarfsemi og nr. 577/1989, um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu og sölu á fasteign. Reglur um þetta efni heimila þeim, sem byggja fasteignir í þeim tilgangi að selja þær virðisaukaskattskyldum aðilum eða leigja fasteignir í atvinnuskyni, að vera innan skattskyldusviðs laga nr. 50/1988, en fasteignir eru að öðru leyti utan skattskyldusviðs laganna. Slíkir aðilar njóta m.a. rýmri heimilda til frádráttar á innskatti, sem aðilum utan virðisaukaskattskerfisins standa ekki til boða. Þær heimildir eru þó háðar því að skilyrði virðisaukaskattsfrádráttarins haldist óbreytt á tilteknu tímabili, eða verði yfirtekin af öðrum, þar til bærum aðila. Að öðrum kosti þarf sá sem notið hefur frádráttarréttar á virðisaukaskatti að endurgreiða (bakfæra/leiðrétta) þann virðisaukaskatt sem fengist hefur frádreginn. Jafnan er talað um leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts, eða að leiðrétta þurfi virðisaukaskattskvöð. Þessi leiðréttingarskylda er bundin í ákvæði laga nr. 50/1988, sem annars fer ekki mörgum orðum um hvernig meðferð leiðréttingarskyldunnar skuli hagað. Á grundvelli heimildar í framangreindum lögum hefur fjármálaráðherra sett reglugerð nr. 192/1993, um innskatt, sem fjallar með nákvæmari hætti um meðferð leiðréttingarskyldunnar. Leitast er við að svara spurningunni um hvernig fara skuli með leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts við gjaldþrotameðferð aðila sem leiðréttingarskyldan hvílir á. Hér er einnig fjallað ítarlega um skilyrði frjálsrar og sérstakrar skráningar, tilurð leiðréttingarskyldunnar og þær fjölmörgu flóknu reglur sem gilda um meðferð hennar. Í lok ritgerðarinnar eru álitaefni í tenglsum við leiðréttingarskylduna sett í samhengi við réttarreglur fullnusturéttarfars
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bragi Freyr Kristbjörnsson 1985-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Soffía Eydís Björgvinsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/10330