Back to search

Bifröst University

Skilyrði og beiting gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008

Abstract

dc:description.abstract

Ákvæði 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 kveður á um að heimilt sé að úrskurða sakborning í gæsluvarðhald ef sterkur grunur leikur á að hann hafi framið brot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi að varðhaldið sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Meginmarkmið þessar ritgerðar er að gera grein fyrir þeim skilyrðum sem sett eru fyrir gæsluvarðhaldi á fyrrnefndum grundvelli ásamt því að skoða hvernig íslenskir dómstólar beita ákvæðinu í framkvæmd. Líkt og orðalag ákvæðisins gefur til kynna eru þrjú skilyrði fyrir beitingu gæsluvarðhalds á grundvelli þess. Fyrri skilyrðin tvö eru þannig úr garði gerð að nokkuð auðvelt er að komast að niðurstöðu um hvort þau séu uppfyllt. Skilyrðið um að gæsluvarðhaldið sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna er öllu matskenndara og því nauðsynlegt að skoða málsatvik hverju sinni, og komast þannig að niðurstöðu um hvort það sé uppfyllt. Hæstiréttur leggur ákveðin sjónarmið til grundvallar þegar hann metur hvort fyrrnefnt skilyrði sé uppfyllt en þau sjónarmið eru mismunandi eftir því hvernig brot er um að ræða. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um gæsluvarðhald á þeim grundvelli sem 2. mgr. 95. gr. sml. vísar til. Dómstóllinn hefur sett mjög ströng skilyrði fyrir beitingu þess en deila má um hvort Hæstiréttur hefur að fullu farið eftir þeim fyrirmælum sem Mannréttindadómstóllinn hefur sett.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur Sigurbjartsdóttir 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðrún Sesselja Arnardóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10952

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur Sigurbjartsdóttir 1987-. Skilyrði og beiting gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. 2012. https://hdl.handle.net/1946/10952