Back to search

Bifröst University

Maður þarf eiginlega að hugsa upp á nýtt : upplifun og viðhorf sjúkraliða á Edenhjúkrunarheimili

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna upplifun og viðhorf sjúkraliða á Edenhjúkrunar-heimili út frá starfsumhverfi og væntingum þeirra til starfsins. Fjallað er um Edenhugmyndafræðina, fyrirmyndarvinnustaðinn og vinnustaðamenninguna, í tengslum við líðan og upplifun þeirra í starfi. Þetta er eigindleg rannsókn frá sjónarhorni fyrirbærafræðinnar. Tekin eru hálfstöðluð viðtöl við átta sjúkraliða sem starfa á Edenhjúkrunarheimili. Fimm meginþemu komu fram sem eru: álag, samskipti, stuðning, breytt hlutverk og stolt. Þátttakendur voru tilnefndir eftir snjóboltaúrtaki og störfuðu allir á sama hjúkrunarheimilinu. Í niðurstöðum þessarar rannsóknar eru viðmælendur almennt ánægðir í starfi, þeir er ánægðir með vinnuna, sitt nánasta vinnuumhverfi, stoltir af heimilinu og ánægðir með yfirmenn og æðstu stjórnendur. Það sem helst dregur úr starfsánægjunni er léleg mönnun, skortur á fagmenntun hjá starfsfólki, breytt gildi og breytt verklag vegna nýrrar hugmyndafræði sem starfað er eftir á hjúkrunarheimilinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Guðrún Erlingsdóttir 1956-
Advisor dc:description.advisor
  • Gylfi Dalmann Aðalsteinsson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10956

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Guðrún Erlingsdóttir 1956-. Maður þarf eiginlega að hugsa upp á nýtt : upplifun og viðhorf sjúkraliða á Edenhjúkrunarheimili. 2012. https://hdl.handle.net/1946/10956