Back to search

Bifröst University

Af lögfestingu kynjakvóta : samræming 63. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995 og mannréttindaákvæða 65. gr. og 72. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara því hvernig ákvæði 63. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995, um kynjakvóta í stjórnir hlutafélaga, samræmist ákvæðum jafnræðisreglu 65. gr. og eignaréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar. Ritgerðin skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn (kaflar 2 -5) fjallar um jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og jafnrétti kynjanna. Þar verður farið yfir inngrip jafnræðisreglna og gert grein fyrir gildissviði jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Upphaf og þróun jafnréttislöggjafar á Íslandi verður rakin og gert verður grein fyrir hugtökunun sértækar aðgerðir og jákvæð mismunun. Jafnrétti kynjanna verður einnig skoðað út frá Evrópurétti og stefnumarkandi dómar Evrópudómstólsins á túlkun jafnréttishugtaka reifaðir. Fyrri hluta ritgerðarinnar lýkur svo með umfjöllun um kynjakvóta. Farið verður yfir fyrirmynd ákvæðis hlutafélagalaga um kynjakvóta og hvernig ákvæðið varð að lögum á Íslandi. Þá verður reifaður ferill stóra kynjakvótamálsins, eins og það hefur verið kallað á Alþingi. Að lokum verður fjallað um túlkun EFTA-dómstólsins á lagaákvæðum um kynjakvóta. Seinni hluti ritgerðarinnar (kafli 6) fjallar um friðhelgi eignarréttar sem varinn er af 72. gr. stjórnarskrárinnar. Til að varpa ljósi á inntak og gildissvið eignarréttarákvæðisins verður gert grein fyrir eignarréttarhugtakinu og takmörkunum eignarréttarins, þ.e. þau skilyrði sem sett eru fyrir eignarnámi. Að lokum verður gert grein fyrir eignarréttarákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu og það borið saman við stjórnarskrárákvæðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Svava Níelsdóttir 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Ástráður Haraldsson 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10968

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Svava Níelsdóttir 1988-. Af lögfestingu kynjakvóta : samræming 63. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995 og mannréttindaákvæða 65. gr. og 72. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. 2012. https://hdl.handle.net/1946/10968