Back to search

Bifröst University

Á samkomulag um sameiginlega forsjá að hafa áhrif á meðlagsgreiðslur, þegar um jafna búsetu er að ræða?

Abstract

dc:description.abstract

Með þessari ritgerð er ætlun höfundar að skoða hvort samkomulag um sameiginlega forsjá eigi að hafa áhrif á meðlagsgreiðslur og þá sérstaklega þegar um jafna búsetu er að ræða. Það er grundvallarsjónarmið í barnarétti að leggja beri áherslu á að rækta tilfinningatengsl barns og foreldra og að barn hafi þörf fyrir að hafa samneyti við báða foreldra sína, enda þótt þeir búi ekki saman, og jafnframt er lögð mikil áhersla á framfærsluskyldu beggja foreldra. Eftir að sameiginleg forsjá var gerð að meginreglu var stórt skref stigið fyrir barn og foreldra til að viðhalda tengslum eftir skilnað eða sambúðarslit foreldra. Í upphafi þessarar ritgerðar verða skoðuð hugtök eins og forsjá, umgengni, framfærsla og meðlagskylda og gerð grein fyrir réttindum barns og foreldrum þess. Viðfangsefni barnaréttar eru kynnt, helstu lög sem snúa að málefnum barna eins og t.d. barnalög og barnaverndarlög. Einnig er gerður samanburður á Norðurlöndum varðandi umgengni og tölfræðilegar upplýsingar um þróun á sameiginlegri forsjá hér á landi kynntar. Nokkrir Hæstaréttadómar og héraðsdómar eru reifaðir með tilliti til efni ritgerðarinnar. Jafnframt verða skoðuð þau frumvörp sem lögð hafa verið fram á síðustu árum með breytingum á barnalögum, sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svandís Edda Halldórsdóttir 1960-
Advisor dc:description.advisor
  • Þorbjörg Inga Jónsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10973

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svandís Edda Halldórsdóttir 1960-. Á samkomulag um sameiginlega forsjá að hafa áhrif á meðlagsgreiðslur, þegar um jafna búsetu er að ræða?. 2012. https://hdl.handle.net/1946/10973