Back to search

Bifröst University

Nýting aukaafurða um borð í vinnsluskipum

Abstract

dc:description.abstract

Nýting fiskafurða hefur batnað talsvert á undanförnum árum, sá hluti fisksins sem áður taldist til úrgangs kallast nú aukahráefni eða aukaafurðir. Árið 1993 var einungis unnið úr 1.663 tonnum af aukaafurðum en árið 2010 var magnið komið í 47.000 tonn. Stærsti hluti aukaafurða sem nýttur er til vinnslu er afskurður en vinnsla á afskurði hefur aukist mikið á undanförnum árum. Hausar, hrogn og lifur koma þar á eftir en vinnsla á þeim hefur einnig aukist mikið. Afskurður og hausar telja 80% af aukaafurðum. Útflutningsverðmæti hausa hefur aukist mikið. Valið var að einblína á mögulega og raunverulega nýtingu hausa um borð í fullvinnsluskipum. Einnig voru gerðir útreikningar á mögulegri nýtingu hryggja og gella um borð í fullvinnsluskipum. Nýlega var sett reglugerð á Íslandi sem skyldar öll frystiskip til þess að hirða alla hausa, lifur og hrogn. Mun þessi reglugerð hafa mikil áhrif á útgerðir en líklegt er að margar útgerðir neyðist til þess að leggja í breytingar og endurbætur á frystiskipum sínum til þess að hægt sé að mæta reglugerðinni. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að mikil verðmæti leynast í aukaafurðum sem frystitogarar fleygja. Mögulegt aukið verðmæti ef öll frystiskip koma á land með alla þorskhausa var tæplega 549 milljónir fiskveiðiárið 2009/2010 og rúmlega 493 milljónir fiskveiðiárið 2010/2011. Mögulegt aukið verðmæti ef öll frystiskip kæmu á land með alla ýsu- og ufsahausa hefði verið 676 milljónir fiskveiðiárið 2009/2010 og rúmlega 382 milljónir fiskveiðiárið 2010/2011. Ljóst er því að ef öll íslensku frystiskipin hefðu komið á land með alla fiskihausa hefði mögulegt aukið verðmæti fiskveiðiárið 2009/2010 verið 1,2 milljarður. Fiskveiðiárið 2010/2011 hefði möguleg verðmætaaukning verið 876 milljónir. Hægt er að skýra þennan mun meðal annars á minna aflamarki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birna Dögg Bergþórsdóttir 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Einar Svansson 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/10997

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birna Dögg Bergþórsdóttir 1986-. Nýting aukaafurða um borð í vinnsluskipum. 2012. https://hdl.handle.net/1946/10997