Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið ritgerðarinnar er að skoða forsjársviptingar samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002 og hvernig þeim er beitt lögum samkvæmt. Í upphafi ritgerðar er barnaréttur kynntur, staðsetning hans innan fræðikerfis íslenskrar lögfræði og farið yfir þróun hans frá aldamótum 1900 til ársins í dag. Kynnt verða brottfallin barnaverndarlög nr. 58/1992 og núgildandi barnaverndarlög nr. 80/2002 með hliðsjón af forsjársviptingum, hvað inntak forsjár er sbr. barnalögum nr. 76/2003 og hverjar forsjárskyldur foreldra eru lögum samkvæmt. Hæstaréttardómar voru reifaðir er fjalla um forsjársviptingar samkvæmt brottföllnum og núgildandi barnaverndarlögum. Niðurstöður þeirra voru í flestum tilfellum forsjársvipting annars eða beggja foreldra og þeim gefið tækifæri á að bæta sig áður en komið var til forsjársviptingar. Í öðrum tilfellum voru mæður fyrrverandi skjólstæðingar barnaverndarnefnda og eru á ný undir eftirliti vegna barna þeirra. Í tveimur Hæstaréttardómum kom fram gagnrýni héraðsdóms á vinnubrögðum barnaverndarnefnda í forsjársviptingarmálum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rósa Katrín Möller Marinósdóttir 1967-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/12629