Back to search

Bifröst University

Fjármögnunarkostnaður ríkja

Abstract

dc:description.abstract

Metin voru áhrif tímaháðra þátta á ávöxtunarkröfu langra ríkisverðbréfa OECD landanna á árunum 2000 til 2010. Við matið nýtti höfundur panel líkan með bundnum þáttum (e. Fixed Effects) fyrir tíma og lönd úrtaksins. Stuðlar fyrir skuldir, auðlegð, milliríkjaviðskipti, lánshæfismat og verðbólgu voru marktækir með 95% öryggi og væntum formerkjum. Athygli vekur að hagvöxtur, sem einnig var marktækur með 95% öryggi hafði jákvætt formerki og eykur þar með ávöxtunarkröfu ceteris paribus (að öllu öðru jöfnu). Einnig var metið líkan með samsetningu skulda sem skýribreytum fyrir smærra úrtak sama þýðis. Stuðlar hlutfalls skulda í innlendri eigu og hlutfalls skulda í erlendri mynt voru marktækir með 99% öryggi og væntum formerkjum. Þrátt fyrir fjölda skýribreyta er lánshæfismat marktækt með 95% öryggi í báðum líkönum sem bendir til þess að fjárfestar leggi vægi á lánshæfismatið sjálft umfram skýribreytur líkansins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Húni Jóhannesson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðmundur Ólafsson 1947-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/12669

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Húni Jóhannesson 1982-. Fjármögnunarkostnaður ríkja. 2012. https://hdl.handle.net/1946/12669