Bifröst University
Þunn eiginfjármögnun : duga ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 90/2003 til að taka á vandamálum tengdum þunnri eiginfjármyndun
Abstract
dc:description.abstractTilgangangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hugtakið þunn eiginfjármyndun og hvaða spurningar og vandamál tengjast því varðandi skattalega meðferð. Spurning er hvort ákvæði skattalaga eigi við þegar skattayfirvöld og dómstólar þurfa að taka afstöðu til gernings sem fellur undir hugtakið, á það hefur enn ekki reynt. Fyrirmynd finnst í þjóðréttarsamningum sem Ísland er aðili að, svo sem OECD (Efnahags- og framfarastofnun Evrópu. E. Organisation for Economic Cooperation and Deelopment) og EES samningnum (Samningnum um evrópska efnahagssvæðið), sem svara því hvernig bregðast eigi við þunnri eiginfjármyndun. Það er þekkt að vaxtagjöld eru frádráttarbær kostnaður við ákvörðun á skattstofni fyrirtækja. Fyrirtækjasamstæður skipuleggja skattgreiðslur sínar eftir því sem hagkvæmast telst og eiga þannig möguleika á að sniðganga skattalög einstakra ríkja t.d. með því að skuldsetja sig fram úr hófi. Leiðréttingaregla tekjuskattslaga (tskl.) laga nr. 90/2003 1.mgr. 57. gr. tekur tæpast á þunnri eiginfjármyndun þó ekki hafi á það reynt í dómaframkvæmd. Á Alþingi hefur komið fram tillaga um að ákvæði verði sett í tekjuskattslögin er taki til þunnrar eiginfjármyndunar en var fellt út í meðförum þingsins. Hagsmunasamtök atvinnuveganna hafa lagt til að úr þessu verði bætt með ákvæði í skattalögum. Erlendar fyrirtækjasamstæður hafa starfsemi á Íslandi og líkur eru á að þeim muni fjölga á næstu árum. Því kann að reynast skynsamlegt að setja ákvæði um þunna eiginfjármögnun í lög
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarni Pétur Magnússon 1948-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/12700