Back to search

Bifröst University

Ákvörðun íslenskra stjórnvalda að viðurkenna sjálfstæði og fullveldi Palestínu

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hvað getur hugsanlega útskýrt þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að viðurkenna sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Fyrst verður farið yfir ríkjandi kenningar í alþjóða- og öryggisfræðum og velt upp þeirri hugmynd hvort Ísland hafi verið að færast undir áhrifasvæði Evrópu síðastliðna áratugi með aukinni samþættingu við álfuna. Þá verður farið yfir sögu Palestínu-Ísraelsdeilunnar, samskipti Íslands við deiluaðila og atburðarásina í kringum viðurkenningu landsins á sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Með tilliti til sögunnar, atburðarásarinnar og samskipta ríkjanna verður síðan reynt að finna ákvörðuninni stað innan fræðanna. Helstu niðurstöður eru þær að afar erfitt reynist að heimfæra ákvörðunina undir raunhyggju en þó er hægt að tengja hana við raunhyggju Waltz ef ákvörðun íslenskra stjórnvalda var tekin með það að markmiði að viðhalda valdajafnvægi í alþjóðasamfélaginu. Þar sem Ísland fékk ekkert í sinn hlut í kjölfar viðurkenningarinnar reynist einnig erfitt að finna ákvörðuninni stað innan frjálslyndisstefnu en þó er hægt að tengja hana við áherslu stefnunnar á mannréttindi. Helstu kenningar og hugmyndafræði sem hægt er að fella ákvörðunina undir eru kenning Alexanders Wendts um stjórnleysi og hugmyndin um hina nýju „evrópsku öld“ þar sem þær fela báðar í sér breytta tíma sem leiða til þess að mögulegt er að taka slíkar ákvarðanir í dag.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hanna Ragnheiður Ingadóttir 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Magnús Árni Skjöld Magnússon 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/14097

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hanna Ragnheiður Ingadóttir 1987-. Ákvörðun íslenskra stjórnvalda að viðurkenna sjálfstæði og fullveldi Palestínu. 2013. https://hdl.handle.net/1946/14097