Back to search

Bifröst University

Um aðila stjórnsýslumáls og réttindi þeirra

Abstract

dc:description.abstract

Með þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á þau skilyrði sem aðilar verða að uppfylla til þess að geta talist aðilar stjórnsýslumáls. Er þetta einkum mikilvægt þar sem flest ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 veita aðeins aðila máls þau réttindi sem lögin kveða á um. Hvergi í stjórnsýslulögunum né í frumvarpi því er varð að þeim lögum er að finna heildstæða skilgreiningu á hugtakinu aðili stjórnsýslumáls. Þá virðist heldur ekki vera að finna í dómum eða álitum umboðsmanns Alþingis tæmandi skilgreiningu á hugtakinu. Fjallað verður um þá hagsmuni sem aðilar eiga að gæta til þess að uppfylla skilyrðið og talist aðilar stjórnsýslumáls. Þá verður fjallað um helstu réttindi sem aðilum stjórnsýslumáls eru fengin með ákvæðum stjórnsýslulaga. Mikilvægt er að skýrt sé hvenær aðilar teljast fullnægja áðurnefndum skilyrðum og hvenær ekki. Þá er mikilvægt að stjórnvöld gæti jafnræðis og samræmis í mati á því hvenær aðilar teljast aðilar stjórnsýslumáls.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjólfur Magnússon 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Aagot Vigdís Óskarsdóttir 1957-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/14105

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjólfur Magnússon 1988-. Um aðila stjórnsýslumáls og réttindi þeirra. 2013. https://hdl.handle.net/1946/14105