Bifröst University
Veldur hver á heldur : hvaða aðferðir nota skólastjórar til að efla sig í starfi og hversu vel þekkja þeir markþjálfun ?
Abstract
dc:description.abstractÞessi rannsókn fjallar um skólastjórnun og markþjálfun og hvort þessir tveir þættir eiga saman. Tekin voru viðtöl við sex skólastjórnendur og einn markþjálfa. Rannsókn þessi er tilraun til að komast að því hvort þeir nýta sér aðferðir til að endurmennta sig og efla sig í starfi og ef svo er hvaða aðferðir það séu. Þá var spurt hvort þeir töldu mikilvægt að fá þjálfun í starfi. Einnig var athugað hvort að markþjálfun sé þekkt aðferð meðal skólastjórnenda og hvort þeir nýti sér aðferðina. Þar að auki var leitast eftir upplýsingum um hvort og þá hvaðan skólastjórnendur fái stuðning í starfi og hvaða skoðun þeir hafi á þjálfun og endurmenntun í sinni starfsgrein. Rannsóknarpurningin er í þrennu lagi: 1. Hvert er mikilvægi þess að nýta sér aðferðir til að efla sig í skólastjórastarfi að mati skólastjórnenda? 2. Hvaða aðferðir nýta skólastjórnendur sér til að efla sig í starfi? 3. Að hvaða leyti gæti markþjálfun nýst skólastjórnendum til að efla sig í starfi? Svo virðist sem það sé mjög mikið framboð af endurmenntun fyrir skólastjórnendur en það það má velta því fyrir sér hvort sú endurmenntun henti nægilega vel eins og hún er sett fram í dag. Aðrar aðferðir sem þátttakendur rannsóknarinnar nýta sér eru samskipti milli annara skólastjórnenda, lestur bóka og fræða á Internetinu. Skólastjórnendum finnst mikilvægt að nýta sér aðferðir til að efla sig í starfi og verða betri í sínu fagi. Skólastjórnendur vilja fá meiri samstarf við aðra skólastjórnendur og að gert sé ráð fyrir endurmenntun þeirra af hálfu sveitarfélaganna. Fram kemur í viðtölunum að sú endurmenntunin sem er til staðar virðist henta illa vegna þess hversu lítill tími er afgangs þar sem starfið er nú þegar mjög umfangsmikið og skólastjórnendur hafa ekki nægilegan tíma til að sinna því sem felst í þeirra hlutverki í dag og síst því sem þeir vilja helst eyða tímanum, það er að segja að vera faglegur leiðtogi skólastarfsins. Einungis einn viðmælenda vissi hvað markþjálfun var en hinir höfðu heyrt þess getið en þekktu aðferðina ekkert. Af þessari rannsókn að dæma virðast skólastjórnendur átta sig á samhengi sinna viðhorfa og lífsgilda í tengslum við skólastarfið og átta sig á því að þessir þættir hafa áhrif á það hvernig skólastarfið er. Skólastjórnendur átta sig á því að staða þeirra er þannig gerð að það hefur áhrif hvernig þeirra persónueinkenni eru. Skólastjórnendur telja sig vera mikilvægan hlekk í skólastarfinu vegna þess að þeir bera ábyrgð á starfinu, þeir leiði starfið og skapa samskiptaflæði til foreldra og samfélagsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erna Guðmundsdóttir 1981-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Runólfur Smári Steinþórsson 1959-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/16117