Back to search

Bifröst University

Fyrsta lagasetning um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla : aðdragandi og áhrif

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis var að varpa ljósi á aðdraganda og áhrif fyrstu laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla sem sett voru í apríl 1963. Reynt var að sýna fram á hvað og hverjir höfðu þar mest áhrif á, en einnig hvernig stuðningi ríkisins við tónlistarskóla landsins var háttað áður en til þessarar lagasetningar kom. Farið var út í viðamikla heimildaöflun vegna þessa verkefnis þar sem unnið var eftir eigindlegri aðferðafræði byggðri á grundaðri kenningu. Einnig voru tekin átta viðtöl vegna þessarar rannsóknar. Niðurstöður eru settar fram sem frásögn þar sem atburðir eru raktir að mestu í réttri tímaröð. Fyrst er farið yfir stofnun tónlistarfélaga og tónlistarskóla á Íslandi en síðan rakin röð helstu atburða sem rannsakandi telur að hafi varðað leiðina að lagasetningu um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Þá er einnig farið yfir helstu áhrif laganna og þær breytingar sem á þeim hafa orðið á 50 ára tímabili. Niðurstöður benda til þess að nokkrir samverkandi þættir hafi leitt til þess að sett voru lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Ber þar fyrst að nefna þá hefð sem skapast hafði fyrir fjárveitingum til tónlistarskóla áður en lög voru sett. Þegar tónlistarskólum fór fjölgandi bar nauðsyn til þess að setja reglur um þessa ríkisstyrki og skilyrði fyrir þeim. Páll Ísólfsson og Árni Kristjánsson voru einnig áberandi í baráttu sinni við að styrkja stöðu Tónlistarskólans í Reykjavík á 6. áratugnum, en það litar einnig aðdraganda lagasetningarinnar. Ragnar Jónsson í Smára, sem var formaður Tónlistarfélags Reykjavíkur, virðist einnig hafa haft mikil áhrif, oft á bak við tjöldin, sem milligöngumaður forystumanna Tónlistarskólans og stjórnmálamanna. Síðast en ekki síst benda niðurstöður til þess að Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, hafi haft mikil áhrif á það að lög voru sett um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla og hafi verið sá drifkraftur sem þurfti til þess að fylgja málinu til enda. Áhrif laganna urðu til þess að styrkja stöðu tónlistarskóla um landið. Þeim fjölgaði mjög í kjölfarið og hafa stuðlað að blómlegu tónlistarlífi landsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Sigurbjörnsdóttir 1968-
Advisor dc:description.advisor
  • Bjarki Sveinbjörnsson 1953-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/16120

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Sigurbjörnsdóttir 1968-. Fyrsta lagasetning um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla : aðdragandi og áhrif. 2013. https://hdl.handle.net/1946/16120