Back to search

Bifröst University

Miðlægur lyfjagagnagrunnur í íslensku heilbrigðiskerfi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf íslenskra lækna til miðlægs lyfjagagnagrunns; einnig að fjalla almennt um miðlægan lyfjagagnagrunn í íslensku heilbrigðiskerfi, hvernig hann hefur þróast og hvaða áhrif það hefur að koma á slíkum gagnagrunni. Fjallað verður um ávinning þess að koma á miðlægum lyfjagagnagrunni og þau jákvæðu áhrif sem það hefur auk þess sem farið verður yfir vankanta gagnagrunnsins. Ávinningur þess að vera með miðlægan lyfjagagnagrunn eru þættir eins og aukið öryggi, aukið eftirlit, mögulega minni fjöllyfjanotkun, minni tilkostnaður vegna lyfja, mögulegur sparnaður innan heilbrigðiskerfisins og grunnur sem byggir á rafrænum færslum. Helsti galli gagnagrunnsins er verndun persónugreinanlegra upplýsinga. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir eftirlitshlutverki ríkisins með tilliti til lyfjanotkunar landsmanna en eftirlitið fer að mestu fram í gegnum Embætti landlæknis, Lyfjastofnun, Tryggingastofnun og Sjúkra-tryggingar Íslands. Gerð verður grein fyrir eftirlitshlutverki ofangreindra stofnana. Lög um persónuvernd hafa einnig áhrif á miðlægan lyfjagagnagrunn og hvernig hann er notaður. Höfundur ritgerðarinnar framkvæmdi viðhorfskönnun meðal lækna þar sem viðhorf þeirra til miðlægs lyfjagagnagrunns var kannað. Svörunin í könnuninni var góð; 430 læknar svöruðu könnuninni en hún var send til 1.088 lækna. Meginniðurstaðan úr könnuninni var sú að 82% lækna voru mjög sammála því að gagnagrunnurinn yrði settur á fót og 14% frekar sammála. Einnig mátti sjá að þeir læknar sem hafa starfað í fimm ár eða minna voru mjög hlynntir gagnagrunninum eða 92%. Af þeim sem starfað höfðu sem læknar í 15-25 ár og 25-35 ár voru 78% mjög sammála. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að læknar telji mikinn ávinning fást með því að hafa til staðar opinn miðlægan lyfjagagnagrunn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurbjörg Bergsdóttir 1976-
Advisor dc:description.advisor
  • Sigrún Lilja Einarsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/16122

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurbjörg Bergsdóttir 1976-. Miðlægur lyfjagagnagrunnur í íslensku heilbrigðiskerfi. 2013. https://hdl.handle.net/1946/16122