Back to search

Bifröst University

Rafræn viðskipti : þarfir smásala fyrir rafrænar upplýsingar frá heildssölum

Abstract

dc:description.abstract

Þörf fyrir upplýsingar á rafrænu formi hefur aukist mikið á undaförnum áratugum og líklega mun þörfin aukast enn á komandi árum. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna þarfir verslana sem selja matvæli fyrir rafrænar upplýsingar um vörur. Upplýsingarnar yrðu aðgengilegar í Gagnalaug, miðlægri gátt sem ráðgert er að setja á fót. Tekin voru viðtöl við þrjá aðila af smásölumarkaði og úr þeim unnar niðurstöður þar sem þörf á upplýsingum var skilgreind. Einnig var unnin SVÓT greining þar sem fram komu helstu styrkleikar, veikleikar, tækifæri og ógnanir við það fyrirkomulag að nálgast rafræn gögn í gagnalaugar. Helstu niðurstöður voru þær að verslanirnar sjá mikinn ávinning í því að nálgast upplýsingar um vörur rafrænt. Verslanir þurfa upplýsingar um vöruheiti, vörunúmer birgja, upprunaland, upplýsinga til þess að reikna samanburð við aðrar vörur og fjölda í ytri magneiningum. Meðal helstu styrkleika má nefna tímasparnað og fækkun mistaka. Sem veikleika má telja að viðmælendur treysta ekki gagnalaugum til þess að halda utanum trúnaðarupplýsingar, svo sem tölur um verð til einstakra aðila eða seldar einingar hjá ákveðnum verslunum. Helsta ógnin er sú að möguleiki er á að gögn séu nú þegar ranglega skráð hjá þeim sem halda utan um þau, en sú hefur verið raunin erlendis. Helstu tækifæri liggja í einfaldari samskiptum milli heildsala, smásala og opinberra aðila sem þurfa á upplýsingum um vörurnar að halda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Vignir Jóhannsson 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Emil Bjarni Karlsson 1953-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/16175

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Vignir Jóhannsson 1987-. Rafræn viðskipti : þarfir smásala fyrir rafrænar upplýsingar frá heildssölum. 2013. https://hdl.handle.net/1946/16175