Bifröst University
Hagvöxtur og skuldir ríkissjóðs : er sýnileg fylgni á milli þessara breyta?
Abstract
dc:description.abstractVið rannsókn þessa, sem hrundið var af stað eftir hugmynd frá Samtökum lánþega, var farið í gagnaöflun sem fór að miklu leyti fram á vef Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS). Unnið var úr þeim gögnum og skoðað hvort það væri fylgni á milli breytinga á skuldum ríkisins annars vegar og breytinga á vergri landsframleiðslu hins vegar. Einnig var skoðuð fylgni á milli atvinnuleysis og verðbólgu. Teknar voru fyrir þrjár þjóðir og bornar saman, það eru Ísland, Noregur og Þýskaland. Reynt var að fara nokkuð ítarlega í upplýsingar þær er fengust á vef AGS og unnið út frá þeim. Rétt þótti að nota aðeins þessa einu gagnaveitu til þess að vera með sams konar tölur fyrir þjóðirnar, í þeim tilgangi að koma í veg fyrir óþarfa skekkjur. Það er þó alltaf hætta á einhverjum skekkjum. Notaður var hlutfallareikningur og einnig var reiknuð út fylgni með Pearsons-aðferð. Helstu niðurstöður varðandi atvinnuleysi og verðbólgu eru þær að neikvæð fylgni er í öllum löndunum þremur. Ísland er með -0,5 Noregur með -0,6 og Þýskaland með -0,25. Fylgnin á milli vergrar landsframleiðslu og skuldastöðu er hins vegar verulega veik þegar á heildina er litið og höfundur telur ekki raunhæft að tala um að þar sé fylgni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurbjörg Kristmundsdóttir 1968-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigurbjörn Einarsson 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/16176