Back to search

Bifröst University

Alþjóðamarkaðssetning íslenskra hönnunarvara

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er eftirfarandi spurningu varpað fram: Hvaða leiðir í markaðssetningu útfrá kenningum um alþjóðamarkaðssetningu eru hentugastar fyrir vefverslun sem stefnir með íslenskar hönnunarvörur á alþjóðamarkað? Auk þess er spurt hvaða kenningum er best að fylgja og hvers konar miðlar henta best til að koma fyrirtækinu á framfæri? Til þess að svara þessum spurningum eru í fyrsta lagi skoðaðar helstu kenningar í alþjóðamarkaðssetningu á borð við The Uppsala Model, The Network Model, Born Global og fleiri. Í öðru lagi eru skoðaðir þeir miðlar sem flokkast undir hefðbunda miðla sem notaðir eru við markaðssetningu í dag og kostir þeirra og gallar metnir útfrá því hversu vel þeir nýtast við alþjóðamarkaðssetningu. Í þriðja lagi eru nýir miðlar skoðaðir og þeir metnir á sama hátt. Í fjórða og síðasta lagi er gerð markaðsáætlun fyrir vefverslun með íslenskar hönnunarvörur með tilliti til þess hvaða kenningu er best að fylgja og hvaða miðla er best að nota. Niðurstaðan er sú að Born Global kenningin eigi best við af þeim kenningum sem fjallað er um. Hefðbundnir miðlar séu óhentugir og að internetið sé sá miðill sem að best hentar til að koma vefverslunni á framfæri. Fjölmargar leiðir eru færar í markaðssetningu á internetinu og þær sem helst verða notaðar eru leitarvélabestun, tengslamyndum í gegnum samfélagsmiðla og gagnvirk markaðssetning með auglýsingakerfum. Niðurstöðurnar er hægt að nýta til þess að hefja markaðssetningu á fyrirtækinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Auður Bjarnadóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/16187

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Bjarnadóttir 1982-. Alþjóðamarkaðssetning íslenskra hönnunarvara. 2013. https://hdl.handle.net/1946/16187