Back to search

Bifröst University

Náttúruverndarsýn og nýting vatnsafls og jarðvarma : greining á hugsjónum og gildum sem áhrif hafa á skoðanir einstaklinga á Íslandi með tilliti til nýtingar eða verndunar náttúru : "hvaða áhrif hafa gildi á skoðanir til náttúru og nýtingar? hvaða áhrif hefur Rammaáætlun haft til að skapa sátt um virkjanakosti á Íslandi?"

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hvað það er sem stýrir skoðunum einstaklinga á Íslandi með tilliti til verndunar eða nýtingar náttúru og hvort rammaáætlun um nýtingu vatnaafls og jarðvarma sem samþykkt var á Alþingi Íslands hafi haft einhver áhrif í þá átt að skapa sátt um virkjanakosti. Virkjanamál á Íslandi hafa löngum þótt umdeildur málaflokkur. Hart hefur verið tekist á um hvernig og hvar virkja skuli og í hvaða þætti atvinnulífsins skuli nýta þá orku sem skapast. Skoðanir eru skiptar um það málefni og má segja að einstaklingar skiptist í flokka þegar kemur að slíkum ákvörðunum. Það eru þó ávallt einhverjar hugsjónir eða gildi sem einstaklingar bera í brjósti sér óháð því hvaða skoðun þeir hafa á málaflokknum. Helstu niðurstöður höfundar eru þær að rammaáætlun virðist ekki hafa náð að skapa þá víðtæku sátt um virkjanamál líkt og henni var ætlað enda er hugsanlega ekki raunhæft að slíkt myndi gerast. Margir telja að ekki sé nógu langt gengið í verndun náttúrunnar meðan á hinn bóginn eru aðrir sem halda því fram að of hart sé gengið fram í að friða svæði sem eru vel til þess fallin að virkja og nýta. Ákveðin umhverfisvakning virðist þó hafa átt sér stað á Íslandi og eiga náttúruvernd og umhverfismál sífellt meir upp á pallborðið hjá Íslendingum. Umræðan er mun fyrirferðameiri og áhugi á að vernda hefur aukist. Rammaáætlun hefur átt sinn þátt í því að vekja fólk til umhugsunar um virkjanamál sem og ákveðin áherslubreyting á gildum og hugsjónum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Logi Jóhannsson 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Auður H. Ingólfsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/16850

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Logi Jóhannsson 1980-. Náttúruverndarsýn og nýting vatnsafls og jarðvarma : greining á hugsjónum og gildum sem áhrif hafa á skoðanir einstaklinga á Íslandi með tilliti til nýtingar eða verndunar náttúru : "hvaða áhrif hafa gildi á skoðanir til náttúru og nýtingar? hvaða áhrif hefur Rammaáætlun haft til að skapa sátt um virkjanakosti á Íslandi?". 2013. https://hdl.handle.net/1946/16850