Back to search

Bifröst University

Málsmeðferð skattrannsókna- og efnhagsbrotamála : réttvísin - mannréttindasáttmáli - stjórnarskrá

Abstract

dc:description.abstract

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, kveður á um að allir eigi að fá úrlausn sinna mála ef um ákæru vegna refsiverðrar háttsemi á hendur þeim er að ræða auk þess sem ákvæði þess efnis er lögbundið í mannréttindasáttmála Evrópu. Málsmeðferðin skal vera réttlát og úrlausn mála á að vera innan hæfilegs tíma. Sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal vera saklaus uns sekt hans er sönnuð. Síðustu ár hafa á Íslandi orðið miklar breytingar á umhverfi rannsókna og saksókna skattalaga- og efnahagsbrotamála og ekki liggur ljóst fyrir hvernig þeim málum verður háttað í nánustu framtíð. Markmið ritgerðarinnar er að leiða fram hver framkvæmd þessara mála er á Íslandi og hvort um réttláta og ásættanlega málsmeðferð og málsmeðferðarhraða er að ræða. Með tilliti til þessa er sérstaklega borinn saman ferill rannsókna og saksókna auk málsmeðferðartíma embætta skattrannsóknarstjóra ríkisins og sérstaks saksóknara. Mörg þessara mála eru afar mikil að umfangi þar sem háar fjárhæðir og um mikið gagnamagn getur verið að ræða. Margir geta verið grunaðir um saknæma aðild og gríðarlegur fjöldi vitna leiddur til skýrslutöku. Að framangreindu eru mál mismikil að umfangi sem leiða til þess að ekki er hægt að framfylgja ásættanlegum málsmeðferðartíma. Að lokum eru dregnar fram hugsanlegar leiðir til úrbóta og aukinnar skilvirkni skattrannsókna- og efnahagsbrotamála hér á landi með tilliti til hvort rannsóknarferli og málsmeðferðartími sé ásættanlegur og réttlátur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rannveig Margrét Stefánsdóttir 1955-
Advisor dc:description.advisor
  • Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/16890

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rannveig Margrét Stefánsdóttir 1955-. Málsmeðferð skattrannsókna- og efnhagsbrotamála : réttvísin - mannréttindasáttmáli - stjórnarskrá. 2013. https://hdl.handle.net/1946/16890