Back to search

Bifröst University

Refsilækkunar- og refsihækkunarástæður og notkun Hæstaréttar á þeim heimildum : Fer Hæstiréttur of varlega í að nota refsilækkunar- og refsihækkunarástæður sem honum er heimilt að nota, þrátt fyrir ítrekaðar tilvísanir í slík ákvæði?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um refsilækkunar- og refsihækkunarástæður og notkun dómstóla á þessum heimildum. Til afmörkunar er sérstaklega tekin til skoðunar almennar refsilækkunar- og refsihækkunarástæður almennra hegningarlaga (hgl.). Það er að segja, almennu refsilækkunarástæður 74. gr. hgl. og 75. gr. hgl. og almennu refsihækkunarástæður 71. gr., 72. gr., 77. gr. og 78. gr. hgl. Í inngangsköflum er leitast við að útskýra refsingar með umfjöllun um markmið refsinga, tegundir refsinga og ákvörðun refsinga. Almennum refsiramma ákvæða og brotaflokka er gerð skil með umfjöllun um nýtingu hans fyrir Hæstarétti. Meginþungi ritgerðarinnar er að fjalla um nýtingu Hæstaréttar á refsiákvörðunarástæðum, í þeim efnum er rakið dóma Hæstaréttar þar sem vísað er til ofangreindar refsiákvörðunarástæðna við ákvörðun refsingar. Rannsóknartímabilið er frá 1990-2013, en það var haft rúmt til þess að hvert ákvæði og hverjum tölulið væri gerð skil. Ákvæðin voru sum hver ákaflega mikið notuð á meðan önnur voru lítið sem ekkert notuð á umræddu tímabili. Með tilliti til lengdar ritgerðarinnar, var fyrirtaka dóma takmörkuð við fordæmi þeirra og tengingu við umfjöllun. Niðurstaða höfundar er sú að heimildirnar koma sjaldan til raunverulegrar refsilækkunar- eða refsihækkunar út fyrir almennan refsiramma, voru aðeins nokkur dæmi þess á rannsóknartímabilinu. Þess í stað koma þær mun frekar til málsbóta eða þyngingar innan refsiramma. Með tilliti til hversu víðtækar heimildirnar sem til skoðunar voru, þótti í mörgum tilfellum tilvísun til þeirra ekki skila sér nægilega í breyttri refsihæð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kjartan Smári Jóhannsson 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðrún Sesselja Arnardóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/17468

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kjartan Smári Jóhannsson 1986-. Refsilækkunar- og refsihækkunarástæður og notkun Hæstaréttar á þeim heimildum : Fer Hæstiréttur of varlega í að nota refsilækkunar- og refsihækkunarástæður sem honum er heimilt að nota, þrátt fyrir ítrekaðar tilvísanir í slík ákvæði?. 2014. https://hdl.handle.net/1946/17468