Back to search

Bifröst University

Hugtakið meðábyrgð : hvernær leiðir gáleysi tjónþola til bótaskerðingar?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður bótagrundvöllur meðábyrgðar tjónþola skoðaður og fjallað verður um á hvaða grundvelli skaðabótaábyrgð vegna meðábyrgðar tjónþola er ákvörðuð. Farið verður yfir sakarregluna og hún skilgreind ásamt því að hugtök tengd henni verða skýrð nánar. Einnig verður farið yfir sakarlíkindaregluna, vinnuveitandaábyrgð og hlutlæga ábyrgð þar sem þessar reglur tengjast viðfangsefninu á einn eða annan hátt. Ef grundvöllur er fyrir bótakröfu tjónþola getur meðábyrgð hans valdið skerðingar skaðabóta að hluta eða að öllu leyti, sé hann sjálfur meðábyrgur vegna stórkostlegs gáleysis eða ásetnings. Sérstaklega verður gerð grein fyrir hugtakinu meðábyrgð tjónþola, fjallað verður um réttaráhrif og sögulega þróun hugtaksins og verður áhersla lögð á að varpa ljósi á hvenær gáleysi tjónþola leiðir til bótaskerðingar. Við sakarmatið hafa komið til hjálpar í seinni tíð mikið safn reglugerða og reglna og nægir oft að athuga hvort tjónvaldur hafi brotið gegn þeim reglum við mat á sök hans. Þá er talað um að hlutlægur mælikvarði hafi verið notaður við sakarmatið og þarf þá ekki að fara út í huglægt mat. Meðábyrgð tjónþola getur verið þungbær en lagaákvæði hafa verið lögfest og dómvenjur myndast sem draga úr ábyrgð einstaklinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Haukur Grétarsson 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Eiríkur Elís Þorláksson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/17471

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Haukur Grétarsson 1980-. Hugtakið meðábyrgð : hvernær leiðir gáleysi tjónþola til bótaskerðingar?. 2014. https://hdl.handle.net/1946/17471