Back to search

Bifröst University

Fjölbreytileiki stjórnarmanna, til framdráttar eða falls?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvort fjölbreytileiki stjórnarmanna innan stjórna sé til framdráttar eða falls. Var það skoðað út frá breytum eins og kyni, aldri, menntun og reynslu. Átta fyrirtæki sem hafa náð góðum árangri á Íslandi, fjögur af fimm stærstu fyrirtækjum Íslands og fyrirtæki sem hafa fengið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum, voru skoðuð og stjórnir þeirra greindar út frá ofantöldum breytum. Leiddi það í ljós að stjórnir þessara átta íslensku fyrirtækja eru að stærstum hluta fjölbreyttar með tilliti til kyns, aldurs, menntunar og reynslu. Mikið af rannsóknum eru til um viðfangsefnið og hafa margar þeirra leitt í ljós að fjölbreyttar stjórnir eru virkari og að fjölbreytni skili sér í ferskari sýn og nýjum hugmyndum auk þess sem stjórnir sem hafa stjórnarmenn með víðtæka reynslu taka betri ákvarðanir. Sýnt hefur verið fram á að stjórnarhættir fjölbreyttra stjórna eru betri en þeirra sem einsleitar eru og fyrirtæki með góða stjórnarhætti eru, ef litið er til lengri tíma, með betri afkomu og teljast því til vænlegri fjárfestingakosta. Niðurstaða rannsóknar höfundar leiddi í ljós að fjölbreytileiki í stjórnum fyrirtækja sé frekar til framdráttar en til falls og ætla má að fjölbreytileiki stjórna skili sér í betra fyrirtæki með betri afkomu og betra vinnuumhverfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Þórdís Þorgilsdóttir 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/17477

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir 1987-. Fjölbreytileiki stjórnarmanna, til framdráttar eða falls?. 2014. https://hdl.handle.net/1946/17477