Bifröst University
Auglýsingamiðlar á Íslandi : standa stafrænir og hefðbundnir auglýsingamiðlar jafnfætis í íslensku markaðsstarfi þegar kemur að skilvirkni skilaboða og marktækni?
Abstract
dc:description.abstractVal á réttum auglýsingamiðlum er grundvallaratriði til að ná til réttra markhópa á réttum stað á réttum tíma og í fjölbreyttu markaðsumhverfi nútímans þarf markaðsfólk sem aldrei fyrr að vera á tánum þegar kemur að vali á réttum miðlum. Tilgangur þessa verkefnis er að veita innsýn inn í notkun íslenskra fyrirtækja á auglýsingamiðlum, hvernig þeir eru valdir og hvort stafrænir og hefðbundnir auglýsingamiðlar standi jafnfætis á Íslandi þegar kemur að skilvirkni skilaboða og marktækni. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi þriggja viðtala við fagmenn á sviði markaðssetningar og birtinga en einnig var notast við niðurstöður úr eigindlegri rannsókn Capacent meðal markaðsstjóra á Íslandi. Helstu niðurstöður voru þær að stafrænir og hefðbundnir auglýsingamiðlar standa ekki jafnfætis í íslensku markaðsstarfi. Kostir þeirra eru ólíkir og þeir virðast ná til mismunandi hópa. Þrátt fyrir að jafnvel sé mögulegt að senda út sömu skilaboð á allflestum miðlum er nauðsynlegt að aðlaga skilaboðin hverjum miðli fyrir sig til að hámarka árangur auglýsinga. Lykilhugtök: Markaðssetning, hefðbundnir auglýsingamiðlar, stafrænir auglýsingamiðlar, markhópar, kaupákvörðunarferli, samhæfð markaðssamskipti, söluráðar, birtingar, spurningakönnun, viðtöl.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigþór Árnason 1984-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/18958