Back to search

Bifröst University

Áhrif FATCA á íslensk fjármálafyrirtæki

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvað íslensk fjármálafyrirtæki þurfa að gera til þess að innleiða verklag vegna nýrrar bandarískrar skattalöggjafar að nafni FATCA. Í rannsókn þessari er reynt að svara hvaða áhrif FATCA hefur á íslensk fjármálafyrirtæki og reynt að finna út hagnýtar lausnir og gefa góð ráð fyrir aðila sem vinna að því að setja upp nýtt verklag varðandi FATCA á Íslandi. Einnig er reynt að benda á lausnir sem hægt er að skoða til þess að einfalda það ferli sem á sér stað við innleiðingu á þessari nýju aðferðarfræði. Niðurstöður eru settar fram í kjölfar viðtals við viðmælanda sem er sérfræðingur í innleiðingu á FATCA og hefur unnið að þessum málaflokki frá stofnun þess. Sá hefur meðal annars unnið að innleiðingu FATCA hjá sænskum fjármálafyrirtækjum og jafnframt verið ráðgjafi fyrir önnur erlend fjármálafyrirtæki. Notast var við eigindleg viðtöl til þess að fá innsýn í innleiðingu fjármálafyrirtækis á Norðurlöndunum sem vinnur eftir sambærilegri löggjöf og fjármálafyrirtæki hér á landi. Niðurstöður benda til þess að íslensk fjármálafyrirtæki þurfi að huga að þó nokkrum atriðum við innleiðingu á FATCA, svo sem nýju verklagi tengdu áreiðanleikakönnunum vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka, hugbúnaðarlausnum og fræðslu starfsmanna vegna ráðgjafar til viðskiptavina. Ef fjármálafyrirtæki sinnir ekki þeim skyldum sem settar eru fram við setningu FACTA laganna, eiga þau sjálf og viðskiptavinir þeirra á hættu að verða skattlögð á grundvelli þessarar nýju löggjafar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hörður Jens Guðmundsson 1981-
Advisor dc:description.advisor
  • Ingólfur Arnarson 1956-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/19026

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hörður Jens Guðmundsson 1981-. Áhrif FATCA á íslensk fjármálafyrirtæki. 2014. https://hdl.handle.net/1946/19026