Bifröst University
Túlkun á 104. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög: með sérstakri áherslu á hugtakið lán og skattalegum afleiðingum brota
Abstract
dc:description.abstractÍ lokaverkefni þessu er fjallað um 104. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Ákvæðið leggur bann við því að hlutafélag láni eða setji tryggingu fyrir hluthafa, stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félagsins eða móðurfélags þess. Að auki er þar lagt bann við svokallaðri sjálfsfjármögnun félaga. Lögð er áhersla á að greina hvað sé lán í skilningi 104. gr. laganna og skoða hverjar skattalegar afleiðingar þess eru að brjóta á ákvæðinu. Byrjað er á því að skoða þróun laga um hlutafélög á Íslandi sem og sérstaklega þróun 104. gr. í íslenskum rétti. Þá verður gert grein fyrir 104. gr. í heild sinni með sérstakri áherslu á það hverjir falla undir tengda aðila og hvaða skilningur er lagður í hugtakið lán í íslenskum rétti. Farið verður síðan í skattalegar afleiðingar þess að brjóta á 104. gr. Niðurstöður sýna að lokum að eins og 104. gr. er orðuð í dag, að þá virðist hún ekki ná markmiði sínu sem er að viðhalda hlutafé og gæta þess að lán til tengdra aðila séu ekki afgreidd eins og um sjálftöku sé að ræða. Aftur á móti virðist vera komin nokkuð skýr heimild fyrir skattyfirvöld að skattleggja ólögmætar lánveitingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Jóhann Gunnarsson 1982-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Elmar Hallgríms Hallgrímsson 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/19138