Bifröst University
Réttur til menntunar : samkvæmt 2. mgr. 76. gr. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944
Abstract
dc:description.abstractÍ greinargerðinni verður greint frá réttinum til menntunar samkvæmt 2. mgr. 76. gr. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í upphafi verður farið yfir hugtakið menntun og hvað það felur í sér sem mannréttindi. Farið verður yfir jákvæð og neikvæð réttindi í sambandi við boð og bönn ríkisins. Jafnframt verður farið í þær lagagreinar sem beinast að rétti til menntunar t.a.m. 76. gr. stjórnarskrárinnar í heild sinni og jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar spila veiga mikið hlutverk í túlkun á mannréttindarákvæðum stjórnarskrárinnar, verður greint frá stöðu Íslands gagnvart þjóðréttarsamningum og einnig farið yfir sáttmálana sjálfa og þau ákvæði sem snúa að réttindum til menntunar. Að lokum verður farið í íslensk sérlög. Rétturinn til menntunar er mikill. Ríkjum er settur viss rammi með stjórnarskrárbundnum mannréttindarákvæðum og alþjóðlegum skuldbindingum, rétturinn er svo útfærður frekar í almennum lögum. Óheimilt er að skerða réttinn nema að ströngum skilyrðum uppfylltum. Aðildarríki að alþjóðlegu mannréttindasáttmálunum hafa skuldbundið sig að koma á viðunandi skilyrðum fyrir einstaklinga til að stunda sitt nám og vinna markvisst að þróun og endurbótum á skólakerfinu í heild sinni. Lögð er áhersla á að allir hljóti grunnmenntun og skal hún vera ókeypis, enda nauðsynleg leið til að fá öðrum mannréttindum framgengt. Æðri menntun á að vera opin öllum hafi viðkomandi hæfileika til að njóta hennar. Íslensku sérlögin eru útfærð með það í huga að standast alþjóðlegar kröfur og speglast ákvæði sáttmálanna í lögunum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hlynur Freyr Viggósson 1986-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/20537