Back to search

Bifröst University

Úttektir hluthafa / eigenda úr félögum : skattaleg meðhöndlun

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um úttektir hluthafa úr félögum, með sérstakri áherslu á úttektir hluthafa í hlutafélögum og einkahlutafélögum. Til að lesandinn geti áttað sig á þeim heimildum sem gilda um úthlutanir fjármuna úr mismunandi félögum er nauðsynlegt að hann þekki hvaða reglur gilda um þær og þau atriði sem skipta máli við skattlagningu þeirra. Í félagsformum sameignarfélaga þar sem ábyrgð félagsaðila er ótakmörkuð geta félagsmenn úthlutað sér fjármunum úr sjóðum félaganna án þess að fara eftir ströngum formreglum. Skattlagning á hagnað sameignarfélaga er endanleg og kemur því ekki til frekari skattlagningar þrátt fyrir að félagsaðilarnir hafi úthlutað öllum hagnaði eða hluta hans til sín. Sömu reglur gilda um skattlagningu á úthlutunum til félagsaðila samlagsfélaga. Mismunur þessara tveggja félagsforma liggur fyrst og fremst í ábyrgð félagsaðila. Hjá sameignarfélagi bera allir félagsmenn beina og ótakmarkaða ábyrgð á meðan hluti félagsaðila samlagsfélags getur borið ótakmarkaða ábyrgð og aðrir enga. Þegar til sameignar- eða samlagsfélags er stofnað geta menn valið hvort félögin hafi sjálfstæða skattskyldu eða ósjálfstæða skattskyldu. Ef þau eru með ósjálfstæða skattskyldu er hagnaðurinn skattlagður eftir skattalegri stöðu félagsaðilans. Þannig að skattlagning slíkra félaga getur verið misjöfn. Ef valið er að hafa rekstur í formi hlutafélags eða einkahlutafélags eru mun strangari reglur um úthlutanir til hluthafa þeirra. Er það fyrst og fremst vegna ábyrgðarhlutans, en hluthafar slíkra félaga bera takmarkaða ábyrgð á rekstri og skuldbindingum þeirra. Strangari kröfur eru settar um hlutafélög og einkahlutafélög til að vernda hagsmuni lánadrottna þeirra. Þannig er komið í veg fyrir að hluthafar hafi forgang á eignir félagsins umfram lánadrottna þess. Úthlutanir til hluthafa geta aðeins farið fram með úthlutun arðs, lækkun hlutafjár eða varasjóðs, kaupa á eigin hlutum og við slit félags. Skattur á hagnað hlutafélaga er lægri en skattur á sameignarfélög og samlagsfélög. Það sem hluthafinn fær greitt hjá félaginu í formi arðs er skattlagt sem fjármagnstekjur, sama á við ef endurgreiðsla er vegna kaupa á eiginhlutum og lækkun hlutafjár er umfram kaupverð bréfanna í upphafi. Hlutafélögum og einkahlutafélögum er ekki heimilt að veita hluthöfum sínum lán. Ef ekki er farið eftir þeim reglum sem gilda um úthlutanir ber að skattleggja þær sem laun eða gjöf hjá viðtakandanum. Dæmi um úttektir sem ekki eru heimilar eru úttektir þar sem skilyrði um jákvætt óráðstafað eigið fé er ekki til staðar, hlutafé lækkað án þess að skilyrði séu til staðar, hluthafa lánað o.fl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Óskarsson 1967-
Advisor dc:description.advisor
  • Jónas Rafn Tómasson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/20562

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Óskarsson 1967-. Úttektir hluthafa / eigenda úr félögum : skattaleg meðhöndlun. 2015. https://hdl.handle.net/1946/20562