Abstract
dc:description.abstractLjómalind matar– og handverksmarkaður selur matvöru framleidda á Vesturlandi sem og handverk framleitt af handverksfólki sem býr á, eða hefur sterka tengingu við Vesturland. Markmið sveitamarkaðarins er að koma matvöru og handverki úr héraðinu á framfæri, gera því hátt undir höfði og gefa smáum söluaðilum tækifæri að koma sínum vörum á framfæri og raunverulega tengingu við neytendur. Í þessu verkefni var farið í stefnumótunarvinnu fyrir sveitamarkaðinn og þrjár sviðsmyndir settar fram sem er ætlað að kalla fram hughrif þess sem gæti orðið. Þessar þrjár sviðsmyndir eru ólíkar eftir því hvernig á spilast úr þeim atriðum sem gætu haft áhrif á framtíð Ljómalindar. Einnig er lögð til stefnumótunaráætlun fyrir komandi ár sem og áætlun til þriggja ára. Gerð var vörumerkisstefna fyrir vörumerkið Ljómalind og helstu niðurstöður þær að mikilvægt er að samhæfa vörumerkingar og byggja upp vörumerkjavirði heildarvörumerkisins (e. top brand) og Ljómalind yrði stuðningsvörumerki (e. endorser role) fyrir vörumerki minni framleiðanda og þannig auka trúverðugleika þeirra. Lykilorð: Sveitamarkaður, Stefnumótun, Vörumerkisstefna, Beint frá Býli, Vesturland, Handverk, Matvælaframleiðsla, Ímynd, Vörumerki, Sviðsmyndir, Ljómalind.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva Hlín Alfreðsdóttir 1979-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/20569