Abstract
dc:description.abstractÍ lokaverkefni þessu er fjallað um forkaupsrétt í fasteignaviðskiptum og réttarvernd hans. Byrjað er á því að skoða staðsetningu forkaupsréttar í fræðikerfi lögfræðinnar og því næst verður hugtakið forkaupsréttur og önnur meginhugtök ritgerðarinnar skilgreind. Litið verður til friðhelgi eignarréttar og hvernig forkaupsréttur nýtur slíkrar verndar með tilliti til stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE). Fjallað verður nánar um forkaupsrétt, takmarkanir eignarráða yfir fasteignum, tilgang og stofnun forkaupsréttar, skilyrði fyrir því að forkaupsréttur verður virkur ásamt því hvernig forkaupsrétti lýkur eða er felldur brott. Greint verður ítarlega frá þinglýsingu forkaupsréttar með sérstakri áherslu á skráningu og sönnun réttarins og skilyrði þess. Þá verður forkaupsréttur í fasteignaviðskiptum sérstaklega skoðaður í kafla um löggjöf varðandi fasteignakaup og í næsta kafla þar eftir þáttur fasteignasala og lögmanna í fasteignaviðskiptum með tilliti til forkaupsréttar. Síðasti kafli ritgerðarinnar fjallar um forkaupsrétt í norskum rétti. Í lokin verður niðurstaða ritgerðarinnar vegna rannsóknarspurningarinnar sett fram.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sveinn Ingi Þórarinsson 1975-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Aagot Vigdís Óskarsdóttir 1957-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/20602