Back to search

Bifröst University

Starfslýsingar íþróttafélaga

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort íþróttafélögin Snæfell og Skallagrímur styðjist við eða séu með fyrirliggjandi starfslýsingar þegar þau ráða inn þjálfara og aðra starfsmenn. Áhersla er lögð á körfuknattleiksdeildir félagana. Settar voru upp tvær rannsóknaspurningar í byrjun. Rannsakandi studdist við fræðilegar heimildir um félögin þar sem ekki var að finna eldri rannsóknir varðandi starfslýsingar íþróttafélaga. Tekin voru tvö eigindleg viðtöl, eitt við starfsmann körfuknattleiksdeildar Skallagríms og eitt við starfsmann körfuknattleiksdeildar Snæfells. Þá var megindleg könnun send út í formi spurningakönnunar til þjálfara fjögurra deilda sem áætlað var að kanna. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að bæði félögin styðjast að einhverju leiti við starfslýsingar en þó ekki allar deildirnar. Körfuknattleiksdeild Snæfells er langt komin með að þróa og vinna samkvæmt kennsluskrám sem og að hafa mannauðsmálin skilgreind. Þar eru starfslýsingar til staðar þegar ráðnir eru nýir þjálfarar sem og starfsmenn. Ungmennafélagið Skallagrímur sýndi fram á lakari niðurstöður varðandi starfslýsingar þar sem nánast flestir af þeim sem svöruðu spurningarkönnuninni sögðust ekki hafa fengið starfslýsingu þegar ráðið var í þjálfarastöður. Marktækan mun mátti sjá á svörum starfsmanna körfuknattleiksdeildanna varðandi ánægju í starfi þar sem stafsmaðurinn með fyrirliggjandi starfslýsingu er ánægðri í sínu starfi heldur en starfsmaðurinn sem hefur enga starfslýsingu að styðjast við.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Gunnarsdóttir 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/20613

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Gunnarsdóttir 1990-. Starfslýsingar íþróttafélaga. 2015. https://hdl.handle.net/1946/20613