Back to search

Bifröst University

Hver eru möguleg tengsl milli heildarvöruþekkingar og heildaránægju vátrygginga?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl heildarvöruþekkingar og heildaránægju hins almenna viðskiptavinar vátryggingafélaganna VÍS, TM, Sjóvá og Varðar á vátryggingum. Kannað var hver munurinn var á heildarvöruþekkingu, heildaránægju, skynjaðrar þekkingar og upplýsingagjöf þessum þáttum milli tryggingafélaga. Tengsl heildaránægju, heildarvöruþekkingar, skynjaðrar þekkingar, þ.e. hversu góða heildarvöruþekkingu viðskiptavinur telur sig hafa, og hversu vel viðskiptavinur telur sitt tryggingafélag upplýsa viðskiptavini um innihald trygginga, voru skoðuð. Hugmyndin að rannsókninni kviknaði í samskiptum rannsakanda við viðskiptavini vátryggingafélaga í gegnum starf sitt sem tjónaþjónstufulltrúi, en af reynslu rannsakanda hafa viðskiptavinir almennt takmarkaða vöruþekkingu, sem virðist hafa áhrif á ánægju þeirra með viðskipti sín við tryggingarfélagið. Notast var við megindlega rannsókn þar sem spurningakönnun var dreift á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem leitast var við að fá svör frá viðskiptavinum tryggingafélaga á Íslandi. Við greiningu gagna var notast við lýsandi tölfræði, dreifigreiningu og fylgnimælingar. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að heildarvöruþekking hafði marktæk línuleg tengsl við heildaránægju en sterkari tengsl við skynjaða þekkingu. Einnig kom í ljós að viðskiptavinir VÍS hafa mestu heildarvöruþekkinguna, TM og VÍS eru með ánægðustu viðskiptavinina, skynjuð heildarvöruþekking er mest hjá viðskiptavinum VÍS en ekki fannst munur á skynjaðri upplýsingagjöf vátryggingafélaganna. Niðurstöður gefa margar áhugaverðar vísbendingar hversu áhrifamikil heildarvöruþekking er, sem vert væri að skoða nánar. Lykilorð: Vátryggingar, tryggð, traust, væntingar, skynjun, ánægja, þjónusta, ímynd,vöruþekking, vátryggingafélög, ánægjuvogin, markaðssetning

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Hilmar Kristinsson 1984-
Advisor dc:description.advisor
  • Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/22052

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Hilmar Kristinsson 1984-. Hver eru möguleg tengsl milli heildarvöruþekkingar og heildaránægju vátrygginga?. 2015. https://hdl.handle.net/1946/22052