Back to search

Bifröst University

Regluvörður : hver er staða og verksvið regluvarða fjármálafyrirtækja?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um stöðu og verksvið regluvarða fjármálafyrirtækja á Íslandi. Í byrjun ritgerðar verður farið yfir hverskonar fyrirtæki falla undir skilgreiningu fjármálafyrirtækis, skoðað er innra skipulag fjármálafyrirtækis og varnarlínurnar þrjár útlistaðar. Innan fjármálafyrirtækja gegna regluverðir mikilvægu hlutverki við að tryggja að fjármálafyrirtæki og starfsmenn þess uppfylli skilyrði sem lög, reglur og innri verkferlar setja þeim. Ef vel tekst til gegna regluverðir lykilhlutverki við að byggja upp og viðhalda góðri viðskiptamenningu innan fjármálafyrirtækis. Fjármálafyrirtæki þurfa að hafa skilgreind úrræði til handa regluverði sem regluvörður getur gripið til ef regluvörður verður var við misbresti innan fyrirtækisins. Sérstaklega verður gerð grein fyrir stöðu og verksviði regluvarða fjármálafyrirtækja og verður reynt að gera því hlutverki góð skil. Fjallað verður um samskipti regluvarða við forstjóra, aðgang að upplýsingum, sjálfstæði regluvarða, starfsöryggi og velt verður upp þeirri spurningu hvort regluverðir ættu einnig að vera siðferðisverðir innan fjármálafyrirtækja. Miklar breytingar hafa átt sér stað á regluverki regluvörslu og verður í lokin skoðuð þróun hlutverks regluvarða og viðmót í þeirra garð fyrir og eftir fall íslensks fjármálamarkaðar haustið 2008.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Haukur Grétarsson 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Elmar Hallgríms Hallgrímsson 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/23258

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Haukur Grétarsson 1980-. Regluvörður : hver er staða og verksvið regluvarða fjármálafyrirtækja?. 2015. https://hdl.handle.net/1946/23258