Back to search

Bifröst University

Í upphafi skal endinn skoða : móttaka og þjálfun sjúkraflutningamanna í hlutastarfi hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Abstract

dc:description.abstract

Ekki hefur mikið verið fjallað um móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna í íslenskum rannsóknum. Höfundur vildi kanna hvernig væri staðið að þessum þáttum meðal sjúkraflutningamanna sem starfa í hlutastarfi hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Fræðileg umfjöllun snýr að viðfangsefnum mannauðsstjórnunar, móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna og mikilvægi þess að vel sé staðið að þessum þáttum. Einnig er komið inn á þann ávinning sem hlýst af. Þá er umfjöllun um þjálfunaraðferðir t.d. starfsfóstraleiðsögn, lærdómsferlið, sálfræðilega samninginn og þróun á móttöku og þjálfun í gegnum árin. Rannsókn var framkvæmd þar sem stuðst var við blandaða rannsóknaraðferð. Megindlegar rannsóknaraðferðir voru nýttar í spurningakönnun og eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala. Viðtölin voru ýmist óstöðluð eða stöðluð. Helstu niðurstöður sem snúa að því hvernig móttöku og þjálfun er háttað eru þær að það virðist vera ágætlega staðið að móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands að mati þátttakenda. Þeir þættir sem mætti helst bæta er þjálfun í neyðarakstri og fleiri verklegar æfingar sem endurspegla raunveruleikann. Þá mætti vera til formlegt móttöku og þjálfunarferli sem snýr að sjúkraflutningamönnum. Helstu niðurstöður sem snúa að þróun á milli ára eru að einhver þróun hefur átt sér stað sem lýsir sér helst í meiri fjölbreytni í þjálfunaraðferðum. Ekki er starfandi mannauðsstjóri innan Heilbrigðisstofnunar Vesturlands þrátt fyrir að starfsmenn séu rúmlega 300 talsins. Þá veltir höfundur því fyrir sér, hvort ekki sé þörf á mannauðsstjóra þegar starfsmenn eru orðnir svo margir innan fyrirtækis. Efnisorð: viðskiptafræði, mannauðsstjórnun, móttaka og þjálfun nýrra starfsmanna, sjúkraflutningamenn, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, starfsþjálfun, nýir starfsmenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elva Pétursdóttir 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/23259

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elva Pétursdóttir 1986-. Í upphafi skal endinn skoða : móttaka og þjálfun sjúkraflutningamanna í hlutastarfi hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands. 2015. https://hdl.handle.net/1946/23259