Back to search

Bifröst University

Væri áskrift á skömmtun á vítamín- og bætiefnum sérsniðin að þörfum hvers og eins, ásamt ráðgjöf og eftirfylgni fýsilegur kostur að bjóða neytendum?

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna fýsileika viðskiptahugmyndar Lyfjavers og hvort hefja eigi áskriftarþjónustu á skömmtun vítamína og bætiefna fyrir núverandi og hugsanlega framtíðarviðskiptavini Lyfjavers. Fýsileikakönnun var lögð fram fyrir viðskiptavini Lyfjavers/Heilsuvers í lok febrúar 2015 og varði könnunin í alls 14 daga. Markmið könnunarinnar var að kanna hvort markaður sé til staðar á sérsniðinni faglegri þjónustu á ráðgjöf og sölu á vítamínum og bætiefnum í skömmtun, sem hægt væri að bjóða viðskiptavinum í Lyfjaveri/Heilsuvers, hvort sem það er á staðnum eða í gegnum heimasíðu þeirra. Vítamín- og bætiefnamarkaðinn var skoðaður, hverjir hugsanlegir samkeppnisaðilar gætu verið og eins var skoðað stuttlega hver virkni Íslendinga er á netverslun í dag. Markaðurinn og samkeppni voru greind og leiðir Lyfjavers til að skapa samkeppnishæfni og forskot. Rannsóknaraðferðin sem notuð var við vinnslu þessarar rannsóknar var megindleg rannsókn í formi spurningarkönnunar sem lögð var út fyrir viðskiptavini Lyfjavers. Spurningakönnunin var lögð fram fyrir viðskiptavini í apóteki Lyfjavers og í verslun Heilsuvers við Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Enn fremur voru notaðar munnlega heimildir í formi hálfopins djúpviðtals við þá Aðalstein Ingvarsson, framkvæmdarstjóra Lyfjavers og Magnús Steinþórsson, rekstrar- og gæðastjóri Lyfjavers. Helstu forsendur könnunarinnar voru fléttaðar saman við fræðilegar greiningar verkefnisins en það var gert til að greina hvort um fýsilegan kost sé fyrir Lyfjaver að framkvæma þessa viðskiptahugmynd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Kolbeinsdóttir 1967-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/23261

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Kolbeinsdóttir 1967-. Væri áskrift á skömmtun á vítamín- og bætiefnum sérsniðin að þörfum hvers og eins, ásamt ráðgjöf og eftirfylgni fýsilegur kostur að bjóða neytendum?. 2015. https://hdl.handle.net/1946/23261